Hef góða tilfynningu fyrir nýju ári.......

........ og horfi jákvæð fram á við. 

Jólin og áramótin eru æðislegur tími, þá borðar maður góðan mat, eyðir tímanum með fjölskyldunni og skemmtir sér.

Kveður svo gamla árið með blysum og skálar fyrir nýju ári.

Gleðilegt ár ALLIR og takk fyrir það gamla. Ég ætla að lifa í "núinu" og njóta þess sem ég hef og þess sem er að gerast núna.

Þeir sem eru með annan fótinn í fortíðinni og hinn í framtíðinni, pissa á nútíðina. 

Kærleikur til allra og knús Heart

jólamaturspilamennskablysskálað fyrir nýju ári

 

 


Verðið hækkar í tönkunum......

....... eða hvað ??

Vissulega hefur olían hækkað aðeins - en dollarinn hefur lækkað aftur, það kallar Olís víst breyting á gengi krónunnar. 

Mér finnst alveg undarlegt hvað olíufélögin á Íslandi hækka alltaf sama daginn, síðast 3. des. 

Er næstum því hlynnt ríkisrekstri með bensín - minni yfirbygging, en þessi yfirbygging kostar sitt því  olíu"furstarnir" hjá Olís, Shell og N1 eru allir með um 3 milljónir á mánuði í laun. 

Kannski er verið að ná inn fyrir "jólabónus" ??

Hafið það gott og keyrið varlega, ekki gefa í...... það kostar meira Wink


mbl.is Olís hækkaði um 5 krónur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hera Björk og Kvennakór Hafnarfjarðar á tónleikum í Víðistaðakirkju í kvöld

Kvennakór Hafnarfjarðar

 Kvennakór Hafnarfjarðar ásamt Heru Björk halda tónleika í kvöld kl. 20 í Víðistaðakirkju. Miðaverð er aðeins 2000 kr.

Lög eins og Panis Angelicus, Pie Jesu, Ave Maria, Maríukvæði ........ verða sungin.

Hlakka bara til að sjá alla sem koma og njóta með okkur Heart

 

 

 


falleg prjónabúð er eins og listasafn......

unikat frankfurt

....... fyrir konu eins og mig (fallegar töskubúðir eru líka eins og listasafn). Ég hlakka svo til að fara í þessar búðir í Frankfurt - þær heita Wolle Rödel og Unikat. Það eru fleiri flottar garnbúðir þar og auðvitað fer ég í þær líka.

Mér finnst nú líklegt að það bætist í garn-safnið mitt. Það er ótrúlegt hvað manni getur vantað mikið af garni Wink

Langar á benda ykkur á flott prjónablöð ýtið hér

 

Vona að næsta vika fari vel með ykkur öll og verði full af kærleik og gleði Heart

 

wolle rödel frankfurt


táknmál fyrir heyrnarlausa.........

Ég þykist geta "sagt" hvað ég heiti á táknmáli. En í kvöld þegar ég ætlaði að segja hvað ég heiti þá mundi ég ekki hvort var S og hvort var G og vildi ekki taka sénisnn á því að  heita Gisrún. Næst þegar heyrnarlausi sölumaðurinn kemur þá kannski man ég þetta. Þessi maður kemur reglulega til mín og selur mér eitthvað - núna almanak Þroskahjálpar, en ég kaupi einhvern veginn allt sem hann er að selja.

Mér finnst heyrnarleysi svo skelfilegt - ég man bara hvernig það var áður en ég fékk heyrnartækið - já ég þarf bara eitt tæki því ég er með þokkaleg heyrn á hinu eyranu - ennþá. 

Félagslega þá er maður "out" !! Ég man hvernig ég sat með fólki - brosti og þóttist heyra hvað talað var um - og missti af öllu. Ekkert mál ef maður var með einni manneskju, en það mátti ekki vera mikið af hljóðum í kring............... eintómt vesen, best að vera bara heima. Svo þótti ég merkileg með mig - svaraði ekki einu sinni þegar yrt var á mig.......... s.s. ég heyrði það ekki - en það sést ekki utaná manni að maður heyrir ekki. 

En heyrnartækið er algjör bjargvættur. Ég ætla ekki að fara út í verð, tryggingarstofnun og 25,5% virðisaukaskatt á heyrnartækjum - heldur ekki "nýmóðins" tæki sem alheyrandi eru að "þróa". Verð frekar fúl í skapi við svoleiðis hugleiðingar. Samt ætla ég einn daginn að skrifa bréf til ráðherra fjármála og fá rökstuðning fyrir þessum virðisaukaskatti á heyrnartækjum.  

 

Helgarkveðjur og knús til allra - og njótið þess að heyra  - ég geri það allavega.

Ef þið viljið kunna nafnið ykkar þá er það hérna


Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt.....

..... litla barnið mitt orðinn 17 ára og kominn með bílpróf. Hann er orðinn stærri en á þessari mynd, sem tekin var í fyrra - hann er s.s. stærri en ég og stóra systir hans. Hvar endar þetta ......... mér finnst vera pizza annan hvern dag en það er bara...

Fólk og urriðar

Það var urriðaganga á Þingvöllum í gær og ég fór með mömmu minni. Ekki það að ég hafi áhuga á urriðum, en á meðan allir voru að glápa á fiskana með sérútbúin gleraugu þá horfði ég á fólkið. Það finnst mér gaman - að glápa á fólk - það er svo...

fyndin "google" þýðing......

Halló kærust vinur minn. Mín var ánægjan að hitta ykkur, og hvernig ert þú að gera í dag? Mitt nafn er Sophie Abdel Hamid, einni ungri stúlku 23 ára gamall, auðvelt að fara, heiðarlegur, umhyggja, kurteis, auðmjúkur, elskandi, logn og leita að þroska...

ég er í grjótinu......

...... og líkar það vel! Grjót út um allt hús - bara flott! Í gær var ég að þvo grjótið mitt og raðaði því svo á borðstofuborðið. Svo get ég endalaust skoðað þessa steina, þeir eru svo flottir. Maður er náttúrulega ekki normal Nú þarf ég að koma þeim...

..... og ég sem hélt að ég yrði ekki langlíf !!

en samkvæmt þessari nýju rannsókn verð ég sko langlíf; - tek þétt í höndina á fólki - stend hratt uppúr stól - get haldið jafnvægi á einni löpp, þegar ég er að teygja á lærvöðvum. Það er eins gott að þessi rannsókn sé vel unnin og "alvöru" en by the way...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband