....þegar ég hætti að reykja, fengi fullt af tíma sem áður fór í reykingar. Þennan tíma ætlaði ég að nota í að laga til í húsinu og hanga á blogginu. Ég hef bara ekkert verið dugleg hvorki í tiltekt né á blogginu. En ég er enn reyklaus og þetta er bara ekkert mál. þetta er eiginlega grunsamlega auðvelt. Nota ekki nikótín-tyggjó eða plástur, drekk bara vatn. Er ekki erfið í skapinu - kem feðgunum á óvart og kannski mest sjálfri mér. Ég er sem sagt miklu meiri töffari en ég hélt ég væri.
Lífstíll | Mánudagur, 8. september 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Stúdentaráð virðist hafa himin höndum gripið - Atlantsolía ætlar að gefa stúdentum 1,82% afslátt af bensíni (3 kr. afsláttur af 164,10 kr = 1,82%). Til að toppa grínið þá gefa furstarnir stúdentum pulsu og kók í dag. Mér finnst þetta hálfgerð niðurlæging að tala um tímamótasamning , ef um væri að ræða alvöru afslátt t.d. 10 - 15 % , þá væri fyrirsögnin í lagi - en ekki þegar um er að ræða 1,82% afslátt.
Dægurmál | Fimmtudagur, 4. september 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Gæinn sem var að kenna mér á tækin í Hress horfði á mig eins og ég væri skrítin þegar ég sagði honum þetta. Ég geri í alvörunni ekki æfingar sem mér finnst leiðinlegar - o.k. hann hafði aðrar leiðir fyrir mig, eitthvað tæki sem reynir á magannfrá öllum hliðum. Blessaður drengurinn sem átti að kenna mér á tækin, gera eitthvað plan fyrir mig allt fyrir 15oo kr. Hann hafði engan sérstakan áhuga á þessu, gerði bara eitthvað, kallaði mig Sigríði (sagði honum hundrað sinnum að ég héti Sigrún) og spurði hvort ég væri komin til að létta mig. Varð smá móðguð því ég hélt að ég væri í kjörþyngd. Þegar hann rétti mér svo blaðið með æfingunum þá stóð SIGRíÐUR. Aumingja þessi Sigríður sem þarf að gera þessar æfingar. Ég geri bara það sem mér finnst skemmtilegt.
Annars gengur mér bara vel, reyklaus - dagur 3 og feðgarnir ennþá á lífi.
Lífstíll | Miðvikudagur, 3. september 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Í dag er ég hætt að reykja
og líkama og sál að veikja
Það er mikil líkn
að vera laus við þessa fíkn
og þurfekki í rettu að kveikja
Á einu almanaksári
laus úr nikótínfári
er það einföld stærðfræði
ég 200 þúsund græði
já bara á einu ári
Ég verð ekki brjáluð í skapi
né köfnuð í spiki og skvapi
því bókin mig fræddi
heilaþvott græddi
að verða ekki fíkniefna-api
Ég bið ykkur bloggheimur góður
sem er um svo margt fróður
að gefa mér ráð
í góðan jarðveg verður sáð
þar sem ekki vex nikótíngróður.
Lífstíll | Mánudagur, 1. september 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Samkvæmt fréttum (visir.is) hefur verð á hráolíu rokið upp um 1,6 % og þá hljóta olíufélögin á Íslandi að hækka verðið. Hvað eigum við að segja - uppí 168,3 kr. lítrann? Bara að giska.
Þeir vita kannski ekki af þessari hækkun? Ætti ég að hringja í þá?
Heimild: http://www.visir.is/article/20080829/VIDSKIPTI07/34446605
Samgöngur | Sunnudagur, 31. ágúst 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Lífstíll | Laugardagur, 30. ágúst 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Bloggar | Föstudagur, 29. ágúst 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Stjórnmál og samfélag | Föstudagur, 29. ágúst 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Bloggar | Þriðjudagur, 19. ágúst 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Vinir og fjölskylda | Mánudagur, 11. ágúst 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Tenglar
vefslóðir
- Kvennakór Hafnarfjarðar Kvennakór Hafnarfjarðar - góður kór
- Sá fimmtugi Sá fimmtugi á facebook
- Gígjan Landsamband íslenskra kvennakóra
- Flottar veiðiflugur flugugallerí
- Olíuverð hægt að fylgjast með olíuverði
Börnin
Bloggvinir
-
holmdish
-
tigercopper
-
liljabolla
-
blavatn
-
totad
-
kruttina
-
gunnagusta
-
hlini
-
christinemarie
-
skordalsbrynja
-
gudrununa
-
hross
-
vilma
-
skelfingmodur
-
jeg
-
atvinnulaus
-
saedishaf
-
athena
-
sigrunsigur
-
maggatrausta
-
elina
-
bjarkitryggva
-
bjarnihardar
-
ingahel-matur
-
curvychic
-
gattin
-
pensillinn
-
songfuglinn
-
audurproppe
-
topplistinn
-
gudrunjona
-
hamingjustundir
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar