Færsluflokkur: Bloggar

stofnanasamningur er röðun í launaflokka......

Hjúkrunarfræðingum á LSH er raðað í launaflokka 1 til 8 en alls eru launaflokkarnir 18.

Hjúkrunarfræðingur sem er með háskólapróf, 2ja ára framhaldsnám í Háskóla og 30 ára starfsreynslu er boðið 378.000 kr. á mánuði fyrir 100% vinnu á LSH. 

Eru það raunhæf laun?


mbl.is Enginn fundur í kjaradeilu hjúkrunarfræðinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Persónukjör; var hún sérstaklega kosin eða kemur hún inn á atkvæðum Á-lista?

....tilheyra ekki atkvæðin sem þessi kona fékk Á-listanum? Þetta er algjörlega óskiljanlegt - Á-listinn fékk atkvæðin, ekki D-listinn.

Ég tek fram að ég þekki ekkert til í Rangárþingi ytra en svona er þetta líka á Alþingi - maður kýs einhvern flokk og vill að atkvæðið nýtist þar og þeirri stefnu sem þar ríkir. Mér þætti gaman að sjá hvar í lögum þessi "persónukjör" eru.

Þetta sýnir líka svart á hvítu að stjórnmálamenn hugsa bara um rassinn á sjálfum sér, ekki þá sem kusu þá. 

 


mbl.is Meirihlutinn fallinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver á sætið í bæjarstjórninni? Er kosið eftir flokkakerfi eða eru einstaklingar kosnir?

Mér finnst alltaf jafn skrítin þessi pólitík...... ekki bara pólitíkin í Garðinum.

Það er kosið eftir "flokkakerfi" þ.e. maður kýs flokk og stefnu hans, þótt auðvitað hafa einstaklingarnir í flokknum áhrif. En þegar fólkið í flokknum er komið í stjórn - er það þá óbundið flokknum? Getur bara farið í hvaða flokk sem er?

Á ekki "flokkurinn" sætið í bæjarstjórn - eða er það manneskjan sem var í flokknum????

Það væri mjög fróðlegt að sjá hvar í lögum það stendur að einstaklingurinn "eigi" sætið, hvort sem það er í bæjarstjórnum eða á Alþingi. 

Ég hef oft velt þessu fyrir mér og ég tek það fram að ég þekki ekkert pólitíkina á Garðinum.


mbl.is Pólitík hefur skemmt skólastarfið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig er hægt að spara meira þegar aukning hefur orðið á þjónustunni?

ég bara spyr!

Mér finnst komið að því að spyrja þá sem ráða s.s. ríkisvaldið - hvað vilja þeir fá fyrir peninginn sem þeir setja í Landspítalann. Aukning á þjónustu fyrir minni pening - hvernig getur það staðist?

Hvaða þjónustu á að veita á LSH? Hverjum á að sinna? Á að setja aldurstakmörk á sjúklinga? (samanber lokun líknardeildar fyrir aldraða). Það þarf hreinlega að fá á hreint hvað ríkisstjórnin vill í þessu máli.

Sparnaðurinn er að ganga út í öfgar að mínu mati. 

Eina ferðina enn á starfsfólkið að vera hrætt um stöðu sína - hverjum verður sagt upp??

"Eins gott að haga sér vel svo manni verði ekki fyrst sagt upp"

Er hægt að láta starfsfólkið hlaupa enn hraðar? Er hægt að fækka starfsfólki þrátt fyrir aukna þjónustu?

Nei, ekki á minni deild. Það er ekki endalaust hægt að níðast á starfsfólkinu! Er ekki starfsfólkið mannauður og heilt batterí innan LSH sem sinnir því. 

Getur ríkisvaldið sparað annars staðar? Já - t.d. sameinað sendiráð - hvað þarf mörg sendiráð á Norðurlöndum á tölvuöld? Mætti ekki fara að loka og sameina þar?

Allavega vona ég að LSH geti starfað sem alvöru sjúkrahús.


mbl.is Stöðum á LSH fækkar um 85
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

það eru forréttindi að vera ég.......

........ allavega að finnst mér það forréttindi að hafa ljósastauralaust svæði fyrir aftan húsið mitt, geta horft á stjörnurnar og norðurljósin. Ljósastaurar skemma þetta.

Eftir 5 km göngu um Álftanesið, heitt bað í stóra baðkarinu mínu, þá er yndislegt að fara út á svalir, hlusta á sjóinn, horfa á stjörnurnar og norðurljósin sem dönsuðu fyrir mig í kvöld.

kannski eru líka forréttindi að vera svolítið skrítin eins og ég - allavega líður mér vel svona Wink

Eigið góða viku framundan og njótið alls þess góða sem er í kringum okkur Heart


lækkun "erlendis" rúm 10% - lækkun "hérlendis" minna en 1%

...... einn daginn gubba ég !

 6.ágúst í fyrra var bensínverð (shell) 198,5 kr. Þá kostaði tunnan af olíu 82$ og dollarinn var 117,2kr. 

í dag er bensínverð (shell) 236 kr. Olíutunnan kostar 79,64$ og dollarinn er 118,4 kr

það munar 37,5 kr - svo segja þeir hjá olíufélögunum að álagning hafi ekki hækkað

hver trúir þessu??

ekki ég 

eigið góða helgi Heart

 


mbl.is Olíuverð lækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

stolið blogg um flottustu hjón Íslands

 

stal þessu af bloggsíðu dóttur minnar. Hún skrifaði þetta í tilefni 30 ára brúðkaupsafmælis okkar foreldra hennar: Titillinn er:

Flottustu hjón Íslands

"Í dag eru 30 ár síðan foreldrar mínir gengu í það heilaga. Það er ekki síður tilefni fyrir mig að halda daginn hátíðlegan enda á ég mögulega lífið að launa þeim játningum sem opinberuð voru á þessum ágæta degi fyrir öllum þessum árum síðan.

Ég er þakklát foreldrum mínum fyrir að hafa staðið hvort með öðru í gegnum súrt og sætt, reynst mér góðar fyrirmyndir og fært mér bróður sem ég gæti ekki hugsað mér lífið án. Ég óska þ´vi ekki aðeins foreldrum mínum til hamingju með daginn, heldur allri fjölskyldunni. Því þökk sé þessum glæsilegu hjónum að við eigum hvort annað að í dag."

Ég hafði aldrei hugsað þetta svona og þetta er svo fallega orðað hjá henni. Enda er hún einstök og vel af Guði gerð. 

Við erum bara heppin öll að eiga hvort annað að í dag.


frændrækni....

..... asnalegt orð - en ég er ekki mjög frændrækin.

Fór samt í dag austur fyrir fjall til Gunnars frænda. Sá hann síðast fyrir 5 árum - er þetta hægt? 

Það er alltaf gaman að hitta fólkið sitt og ætti maður að gera það oftar - annars hættir maður að þekkja það Wink 

Galtastaðir gunnar frændi 005á myndinni er Gunnar frændi, Inga Hanna Gunnarsdóttir, Elín og ég.

 

 

 

 

 

 

Elín gerir mjög fallega skartgripi og keypti ég þrjá hluti - þurfti að passa að fara ekki fram úr mér. En þegar ég las yfir Moggann þá sá ég stjörnuspá fyrir steingeitina og þar stóð:

Búðu þig undir smávegis kaupæði í dag.Hefði átt að lesa þetta áður en ég fór austur Wink

 

Svo segi ég eins og venjulega - eigið góða viku alle sammen og verum góð við hvert annað Heart

 


KONUR sýnum samtakamátt okkar......

..... og förum á

http://is.isci.is

og skrifum undir. 

hægt er að lesa um verkefnið hér http://is.isci.is/Lesa/92

Auður Guðjónsdóttir á það skilið af okkur konum að við leggjum henni lið á síðustu metrunum - það gæti orðið til þess að tillaga til Norðurlandaráðs verði tekin fyrir og samþykkt.

Í stórum dráttum er efni tillögunnar að Norðurlandaráð setji á stofn starfshóp lækna og vísindamanna sem hafi það hlutverk að skoða norrænar og aðrar rannsóknir og meðferðir á mænuskaða og gera tillögur um úrbætur. 

Konur - sýnum samtakamáttinn og skrifum undir.

Eigið góða viku.


einn góður fyrir helgina.....

-Maður nokkur var staddur í Hagkaupum að kaupa sér kjúkling þegar gullfalleg

kona, sem stóð við kælinn, veifaði í hann og brosti til hans. Hann varð

hálfvandræðalegur, en gekk til hennar og spurði hvort þau þekktust. "Já, ég

er ekki frá því að þú sért pabbi eins stráksins míns" svaraði hún.

Varð nú okkar maður heldur betur vandræðalegur, hrökk allnokkuð við og

stamaði klúðurslega út úr sér "ha... ert þú stripparinn á Bóhem sem ég

dúndraði í steggjapartíinu mínu fyrir framan alla vini mína og spreyjaði

með þeyttum rjóma meðan þú tróðst agúrku upp í rassgatið á mér... ó mæ god,

ég þekkti þig ekki!"

Konan svaraði svipbrigðalaust:

"Nei, ég er umsjónarkennari sonar þíns!"


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband