Mín er að byrja í líkamsrækt!

Hingað til hef ég bara stundað geðrækt með líkamsræktarívafi - sem sagt kvöldgöngurnar mínar. Núna skal hefja alvöru líkamsrækt í alvöru líkamsræktarstöð. Búin að kaupa kort í Hress og alvöru líkamsræktarskó. En nú vantar allt hitt outfittið. Vil helst ekki verða skemmtiatriði svona fyrsta daginn. Mér finnst að vísu gaman að hafa brosandi fólk í kringum mig.

Fór í skápinn og leitaði - mátaði - rótaði og fann svo þessar fínu buxur, sem ég held að passi bara. Ég á milljón þrönga boli sem ég get verið í.

Á mánudaginn verður svo tekið á því.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Milli húsa smit ?

Ragnheiður , 30.8.2008 kl. 22:54

2 Smámynd: Sigrún Óskars

Já kannski bara. Annars væri ég líka til í að smitast af einlægni þinni og fá þennan skemmtilega húmor sem þú hefur, þó það væri ekki nema smá partur.  

Sigrún Óskars, 30.8.2008 kl. 23:02

3 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

sko mína!!!!

Hittist þ hollið í dag

Hólmdís Hjartardóttir, 31.8.2008 kl. 00:12

4 Smámynd: Aprílrós

Gangi þér vel í líkamsræktinni. Ég ætla aftur í pílatesið í vetur.

Aprílrós, 31.8.2008 kl. 00:54

5 Smámynd: Sigrún Óskars

Hólmdís, Þ-hollið hittist ekki, við Gréta fórum samt fyrir utan Hótel Borg á umsömdum tíma - það hefur engin munað eftir þessu. Erum við orðnar svona gamlar? eða hvað?

Sigrún Óskars, 31.8.2008 kl. 17:22

6 Smámynd: Sigrún Sigurðardóttir

Gangi þér vel í ræktinni og ekki gleyma jákvæða hugarfarinu og tilganginum með þessu hihi

Sigrún Sigurðardóttir, 31.8.2008 kl. 18:34

7 Smámynd: Tína

Dáist að þér kona!! Tvíbakan mín er einkaþjálfari (og það góður) en svei mér ef ég er ekki með þeim erfiðustu (gott ef ekki sú erfiðasta) sem hún hefur fengið í þjálfun til sín  Ég hreinlega þoli ekki líkamsrækt af neinu tagi fyrir utan göngur. En ég lét til leiðast þegar hún sagði að það mætti hreinlega ekki fréttast að ég hefði aðgang að einkaþjálfara en nýtti mér það ekki. Sögulokin urðu reyndar sú að hún gafst upp á mér  

Gangi þér alveg rosalega vel í þessu átaki þínu.

P.s Þú tekur þig örugglega vel út í þrönga bolnum.

Tína, 1.9.2008 kl. 08:16

8 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

Gangið þér sem best í ræktinni, veit þú verður ofsa kúl í átfittinu....bara ekki gleyma "hettupeysunni".

Sigríður Sigurðardóttir, 2.9.2008 kl. 12:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband