Færsluflokkur: Bloggar
Í gær fór ég uppá Skaga í Garnbúðin.is. Þar er ég eins og krakki í nammibúð og auðvitað keypti ég mér garn. Þessi garnbúð er svo æðisleg og mikið til af flottu garni og ekki dýrt.
Nú sit ég bara og prjóna og prjóna - enda farið að rigna og þá nenni ég ekki út í garð.
Það er svo skrítið hvað maður þarf alltaf að eiga "nóg" af garni - ég keypti t.d. tvennslags garn í gær - þetta appelsínugula og svo brúnt aðeins loðið með glimmer í - það var á tilboði 350 kr. dokkan og mjög drúgt. Ég er bara garna-sjúk og það verður bara að hafa það.
Bloggar | Miðvikudagur, 9. júní 2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Samkvæmt þessari grein hérna er sund gott fyrir þunglynda. Ég er sem betur fer ekki þunglynd en það má alltaf bæta í manni lundina - ekki satt?
Ég er alltaf á leiðinni að vera dugleg að fara í sund - en einhvernvegin "drulla" ég mér ekki af stað. Er samt með þessa fínu Álftaneslaug hérna rétt hjá, sem er bara flott og góð sundlaug.
Þeir sem fara reglulega í sund eru alltaf útiteknir, líta vel út og svei mér þá ef þeir eru bara ekki glaðari en aðrir.
Bloggar | Miðvikudagur, 26. maí 2010 (breytt kl. 20:34) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Efri myndirnar eru af sömu töskunni - bara sitthvor hliðin. Hef tölu á báðum hliðum - þá skiptir ekki máli hvernig hún snýr. Bandið er prjónað "langsum" mér finnst það flottast.
Ljósa taskan er hekluð úr léttlopa með skrautgarni sem ég keypti í garnbúðin.is
Húfan er með sama skrautgarni, annars hekluð úr tvöföldum lopa
Bloggar | Fimmtudagur, 20. maí 2010 (breytt kl. 14:59) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
ákvað að setja myndir af peysum sem ég hef búið til í vetur.
þessi er úr kitten garni, sem ég hrifnust af fyrir utan lopa. Maður hendir kitten peysum bara í þvottavélina - ekkert mál. Finnst þessi peysa ekkert spes.
Lopapeysa úr tvöföldum plötulopa. notaði chilli garn í munstur - kemur bara vel út.
Þetta er líka lopi - tvöfaldur. Efst er rosalega mjúkt garn sem ég keypti í garnbúðinni á Akranesi. Ég byrjaði efst á peysunni, í hálsmálinu og prjónaði hana niður. Er bara ánægð með þessa.
Búin að prjóna 2 kjóla og einn skokk sem ég þarf að taka myndir af og setja inn.
Bloggar | Föstudagur, 12. mars 2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
....... mér finnst þetta alltaf jafn kostulegt - en ég er hætt að taka þetta nærri mér.
Þegar ég var "yngri" þá var ég ljóshærð - en fyrir mörgum árum þá fór ég að lita á mér hárið. Varð rauðbrúnhærð og það klæddi mig bara vel. Eftir það hætti fólk að þekkja mig. Fólk sem ég vann með lengi og hitti ekki í nokkur ár - það hafði bara ekki hugmynd um hver ég var og gekk fram hjá mér. Ég breytti engu öðru en háralitnum - er ennþá sami hippinn (bara ljóska í felum)
Ég tók þetta nærri mér lengi en núna finnst mér þetta bara kostulegt.
Skrítið, en á meðan mitt nánasta þekkir mig þá er þetta ekkert mál
Bloggar | Fimmtudagur, 11. mars 2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Frá áramótum hefur bensínverð hækkað um 20 krónur - úr 188,20 kr í 208,20kr.
Samt lækkaði bensínverðið um mánaðarmótin jan / febr. en ekki á Íslandi.
Í fréttinni segir að bensínverð hjá N1 sé lægra en hjá hinum - það er ekki rétt - auðvitað hækka allir sama daginn og allir með sama verð.
Það þarf að gera eitthvað í þessu - við getum ekki látið þetta yfir okkur ganga endalaust.
![]() |
Eldsneytisverð hækkar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Miðvikudagur, 10. mars 2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Ég bíð spennt eftir því að sjá hvaða menn verða á listanum og hverjir ekki.
Ekkert hefur heyrst af listanum - hann er kannski bara að lognast út af??
Kannski eru einhverjir sem vilja vera með en fá ekki - og kannski eru einhverjir sem fá að vera með en vilja ekki.
Bíð bara spennt eftir fréttum ...........
Bloggar | Laugardagur, 30. janúar 2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
.......................... með öllu??
En pullu með öllu nema hráum? Á mínu heimili fáum við okkur pullu - hvaðan kemur þetta orð eiginlega? Eða fröllurnar?? Það eru pantaðar fröllur með hamborgaranum - en ég veit að þetta orð kemur frá Hjördísi dóttur minni. Hún er eins og pabbi sinn - býr til orð - en það hefur hann alltaf gert. Orð sem við notum og þegar börnin voru lítil þá héldu þau að allir fengju sér morgara, vissu ekki að "venjulegt" fólk talar bara um morgunmat.
Ég hef aldrei "búið til" orð - apa bara upp eftir hinum á heimilinu og finnst það eðlilegt. Maður er náttúrulega bara skrítin
Bloggar | Sunnudagur, 17. janúar 2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Vísindagreinar Moggans eru hreint ótrúlegar og auðvitað kvittar enginn blaðamaður undir þetta, ekki frekar en aðrar "fréttir".
En Mogginn er sem sagt að fræða okkur um þessa rannsókn og orðrétt segir: "að skortur á svefni sé áhættuþáttur í þinglyndi"
Hvað er áhættuþáttur í þinglyndi?? Auðvitað er þetta innsláttarklúður með þinglyndið en rétt ætti að vera "áhættuþáttur þunglyndis" (ekkert í neinu)
Svona skrif og svona lélegar þýðingar ættu ekki að sjást - nema ef grunnskólanemar væru að æfa sig í þýðingum - þá mundi maður fyrirgefa það.
En kæru Moggalesendur - þið vitið þá þetta: ef unga fólkið fer að sofa eftir miðnætti, þá fær það minni svefn en þeir sem sofna fyrir kl. 22 á kvöldin.
![]() |
Svefnleysi veldur þunglyndi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Laugardagur, 2. janúar 2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
..... og aldrei það kemur til baka.
Gleðilegt ár alle sammen og takk fyrir öll samskiptin á árinu sem er að líða.
Ég varð fimmtug þann 29. des og auðvitað var skálað af því tilefni enda hef ég aldrei verið eins gömul og reyndar hef ég heldur ekki verið eins ung og ég er í dag.
kærleiksknús til allra
Bloggar | Laugardagur, 2. janúar 2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Tenglar
vefslóðir
- Kvennakór Hafnarfjarðar Kvennakór Hafnarfjarðar - góður kór
- Sá fimmtugi Sá fimmtugi á facebook
- Gígjan Landsamband íslenskra kvennakóra
- Flottar veiðiflugur flugugallerí
- Olíuverð hægt að fylgjast með olíuverði
Börnin
Bloggvinir
-
holmdish
-
tigercopper
-
liljabolla
-
blavatn
-
totad
-
kruttina
-
gunnagusta
-
hlini
-
christinemarie
-
skordalsbrynja
-
gudrununa
-
hross
-
vilma
-
skelfingmodur
-
jeg
-
atvinnulaus
-
saedishaf
-
athena
-
sigrunsigur
-
maggatrausta
-
elina
-
bjarkitryggva
-
bjarnihardar
-
ingahel-matur
-
curvychic
-
gattin
-
pensillinn
-
songfuglinn
-
audurproppe
-
topplistinn
-
gudrunjona
-
hamingjustundir
Apríl 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.4.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 16
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar