þrjár peysur

ákvað að setja myndir af peysum sem ég hef búið til í vetur.3 peysur 004

þessi er úr kitten garni, sem ég hrifnust af fyrir utan lopa. Maður hendir kitten peysum bara í þvottavélina - ekkert mál. Finnst þessi peysa ekkert spes.

3 peysur 006

Lopapeysa úr tvöföldum plötulopa. notaði chilli garn í munstur - kemur bara vel út.3 peysur 003

Þetta er líka lopi - tvöfaldur. Efst er rosalega mjúkt garn sem ég keypti í garnbúðinni á Akranesi. Ég byrjaði efst á peysunni, í hálsmálinu og prjónaði hana niður. Er bara ánægð með þessa.

Búin að prjóna 2 kjóla og einn skokk sem ég þarf að taka myndir af og setja inn.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Dugleg ertu að prjóna. Ég er alltaf hrifin af prjónaskap. Ég sjálf hef afrekað 2 lopapeysur úr tvöföldum lopa í vetur en á eftir að opna þær báðar, þ.e. setja tölur eða rennulás í þær. Stoppa oft þar  Nýjasta uppátækið hjá mér er að prjóna vettlinga út í loftið. Ég held að ég sé að verða eins í handavinnunni eins og í matseldinni, nenni ekki að lesa uppskriftir  er að prófa mig áfram í þessu og sé fyrir mér vettlinga með allskonar munstri og dúllum í hehe......

Bestu kveðjur

Gurra

Gurra (IP-tala skráð) 12.3.2010 kl. 21:39

2 Smámynd: Sigrún Óskars

já Gurra, skemmtilegast er að prjóna "út í loftið" og búa til flíkina frá grunni. Þú verður að taka myndir af vettlingunum og setja á síðuna þína. Bestur kveðjur til þín Gurra

Sigrún Óskars, 12.3.2010 kl. 21:46

3 identicon

Ég þori ekki enn fyrir mitt litla líf að "prjóna út í loftið". Er ekki enn nógu örugg með mig til þess. En ég dáist mikið að þér Sigrún mín

Knús á þig elskuleg

Christine Einarsson (IP-tala skráð) 15.3.2010 kl. 13:21

4 identicon

Sæl Sigrún.

Mikið eru peysurnar flottar hjá þér. ÉG notaði einmitt tvöfaldan kitten móhair í munstur við tvöfaldan lopa og það kom rosalega vel út.

Núna er ég svo að gera mohair ermar, hlakka til að sjá útkomuna úr því.

kv

BerglindHaf

Berglindhaf (IP-tala skráð) 23.3.2010 kl. 09:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband