Færsluflokkur: Bloggar
Ef eitthvað er sagt við mann, sem kannski særir, þá eru það ekki álög. En á maður að láta annarra manna skoðun særa sig??
Ég varð svolítið sár í gær þegar verið var að tala um fatastílinn minn.
Það hefur alltaf verið ljóst að ég er ekki eins og aðrir þegar kemur að "outfittinu" ég er bara ég. Ég hef alltaf verið ánægð með það og finnst bara smart að vera ég sjálf.
Fataskápurinn minn er fullur af fötum og þegar ég er að fara eitthvað þá máta ég nokkur dress, allt þarf að passa saman - skartgripir - taska.........
Í gær var ein sem sagðist halda að ég klæddi mig bara til að hylja nekt mína - og að ég væri óvenju fín fyrir utan "lopapeysuna" sem ég væri í. "Lopapeysan" er mohair peysa sem ég er nýbúin að prjóna og búa til (það heitir design í dag) og mörgum finnst hún flott - allavega er ég ánægð með hana.
Svo fór hún að tala um make-up og kom fram hjá konunni að þegar maður er kominn á "þennan aldur" (yfir fimmtugt) þá kemst maður ekki upp með að vera ómálaður og ómeikaður. Það voru allar með málningu og meik við borðið nema ég - ég með minn maskara og varalit. Ég var sem sagt frekar hallærisleg - ómáluð og í einhverjum fötum til að hylja nekt mína.
Ég var svo ánægð með mig þegar ég lagði af stað í boðið. Reyndi að láta þetta ekki hafa áhrif á mig en það gerði það samt. Hún er samt vinkona mín - hún í sínum stíl, máluð og alles og ég í mínum stíll.
Nú er vorið komið, ég er komin í trékossana og farin úr sokkunum (meira að segja búin að draga fram ökklaböndin). Fuglarnir farnir að syngja "horný" söngva og flugurnar vaknaðar niður í fjöru.
Eigið góða viku allir saman - njótið þess að vera ÞIÐ SJÁLF og vera ánægð með það. Það ætla ég að gera.
p.s. bókin Orð eru álög eftir Siggu Kling er snilld og eiginlega skyldulesning!!
Bloggar | Sunnudagur, 3. apríl 2011 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Ég er búin að eiga "venjulegan" síma sem er bara sími; ekki myndavél, ekki GPS tæki, ekki útvarp ... og svo videre. Þar til ég fékk nýja símann, sem er með ÖLLU og meira til.
En hann fer svo í taugarnar á mér að það hálfa væri hellingur .
Sonur minn á eins síma og hann er draumur í dós ( eins og sonurinn). Hann getur stillt sinn síma á GPS eitthvað og þá mælir síminn vegalengdina sem maður labbar, segir manni tímann og meðalhraða og alles.
Minn sími gerir þetta ekki eins auðveldlega - þetta er samt sama sort Nokia eitthvað voða fínt.
Það tók steininn úr í dag þegar ég ætlaði að mæla vegalengdina frá hliðinu hjá Seilu og heim, ég veit svo sem að þetta eru 2 km en langaði allt í einu að sjá það. Þá DÓ síminn - þetta var to much fyrir hann. Síminn lifnaði að vísu við þegar ég kom heim (því miður). Þetta er of dýr og fínn sími til að henda honum - ætli hann endi bara ekki hjá þeim fimmtuga - hann á gamlan síma.
Með öðrum orðum - ég vil bara síma sem er bara sími svo er ég bara með iPodinn minn og þarf ekkert að vera nota GPS. Fer bara inná kortavefinn hjá www.ja.is og mæli það sem ég þarf að mæla.
Eigið góða viku
Bloggar | Sunnudagur, 20. mars 2011 (breytt 24.3.2011 kl. 08:27) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
........ og horfi jákvæð fram á við.
Jólin og áramótin eru æðislegur tími, þá borðar maður góðan mat, eyðir tímanum með fjölskyldunni og skemmtir sér.
Kveður svo gamla árið með blysum og skálar fyrir nýju ári.
Gleðilegt ár ALLIR og takk fyrir það gamla. Ég ætla að lifa í "núinu" og njóta þess sem ég hef og þess sem er að gerast núna.
Þeir sem eru með annan fótinn í fortíðinni og hinn í framtíðinni, pissa á nútíðina.
Kærleikur til allra og knús
Bloggar | Sunnudagur, 2. janúar 2011 (breytt kl. 14:26) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
..... litla barnið mitt orðinn 17 ára og kominn með bílpróf.
Hann er orðinn stærri en á þessari mynd, sem tekin var í fyrra - hann er s.s. stærri en ég og stóra systir hans.
Hvar endar þetta ......... mér finnst vera pizza annan hvern dag en það er bara pizza á föstudögum.
Ég er alltaf að fá útborgað........
Maður er alltaf að plana sumarfrí............
Það verður alltaf styttra og styttra á milli jóla......
En talandi um jólin.... þau koma eftir nokkra daga....... eftir 10 vikur þá er jóladagur og of seint að senda jólakort og of seint að kaupa jólagjafir.......
Unglingurinn skrapp út á rúntinn með vini sínum - það er ekki laust við að maður sé smá stressaður.... en það er einn aðili sem er æðri en ég og gæti fylgt honum og hann er bara beðinn um það.
Sendi knús og kveðjur til ykkar allra.......
Bloggar | Laugardagur, 16. október 2010 (breytt kl. 22:41) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Bloggar | Sunnudagur, 10. október 2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Halló kærust vinur minn.
ég fæ mikið af allskonar bréfum á netfangið mitt (er með .com, ekki .is) - en þetta toppar þau öll - búin að hlægja mikið af þessu.Nú eru "hakkararnir" búnir að uppgötva google translate og þetta er útkoman. Þeir pikka líka upp einhver íslensk nöfn og nota í netföngin sín, svo maður heldur að það sé íslendingur að senda manni t.d. sigrid hjá yahoo ........... Þessi kona er að leita að manni sem er m.a. logn, kurteis og auðmjúkur....
|
Bloggar | Sunnudagur, 3. október 2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
...... og líkar það vel! Grjót út um allt hús - bara flott!
Í gær var ég að þvo grjótið mitt og raðaði því svo á borðstofuborðið. Svo get ég endalaust skoðað þessa steina, þeir eru svo flottir. Maður er náttúrulega ekki normal
Nú þarf ég að koma þeim fyrir - hver á sinn stað.
Hafið það gott allir á meðan ég hef það gott í grjótinu mínu
Bloggar | Sunnudagur, 19. september 2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
en samkvæmt þessari nýju rannsókn verð ég sko langlíf;
- tek þétt í höndina á fólki
- stend hratt uppúr stól
- get haldið jafnvægi á einni löpp, þegar ég er að teygja á lærvöðvum.
Það er eins gott að þessi rannsókn sé vel unnin og "alvöru"
en by the way hugmyndaflugið hjá þessum vísindamönnum í London, ég segi bara ekki annað.
sendi ykkur öllum knús og kveðjur.
![]() |
Sterkt handaband tengt langlífi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Laugardagur, 11. september 2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
...... nema mitt er ca 100 árum yngra. Mitt píanó er frá Hornung og Möller eins og stendur á skildinum sem er framan á píanóinu. Á safninu á Eyrarbakka er alveg eins píanó og mitt nema bara miklu minna - það er eins og það sé small en mitt large.
Svona píanó kallast líka taffel piano - en í þessum hljóðfærum þá liggja strengirnir lárétt en í "venjulegum píanóum" þá standa strengirnir lóðrétt.
(ég held að square nafnið sé enska en taffel danska).
![]() |
Fékk gefins píanó frá 1785 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Laugardagur, 4. september 2010 (breytt kl. 11:28) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)

Það er einn hlutur á heimilinu sem ræður því hvernig mér líður ......... eða réttara sagt ég læt þennan hlut ráða því.
Í morgun steig ég á þennan örlaga-hlut og "BING" dagurinn er ónýtur.
Mér finnst samt svolítið hallærislegt að láta þetta hafa svona áhrif á sig - en tvö og hálft kíló í yfirvigt er of mikið finnst mér og mér líður eins og heimurinn sé að farast. Lít sem snöggvast í spegilinn og sé hvað hárið er eitthvað ömurlegt, svo fínlegt og asnalegt, húðin framan í mér er sko alveg..............hvaða pokar eru þetta???
Ég er náttúrulega ekki í lagi !!
Mitt í þessum hugarórum þá reyni ég að hugsa eitthvað jákvætt - ég er jú bara venjuleg kona.
Ég á fínan kall sem er búin að vera með mér í yfir þrjá áratugi, börnin mín eru bæði í góðum málum og ég er svo stolt af þeim. Ég er í vinnu, á hús og bíl (bíla) og allt af öllu. Svo kann ég ýmislegt fyrir mér og hef skemmtileg áhugamál, sem ég get sinnt þrátt fyrir vigtina
Auðvitað á maður að vera ánægður með sig eins og maður er - en þessi auka kíló þurfa samt að fara og ég kann sko alveg aðferðina; borða minna-hreyfa sig meira.
Maður er bara það sem maður hugsar
think thin (don´t feel fat).
Bloggar | Fimmtudagur, 26. ágúst 2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Tenglar
vefslóðir
- Kvennakór Hafnarfjarðar Kvennakór Hafnarfjarðar - góður kór
- Sá fimmtugi Sá fimmtugi á facebook
- Gígjan Landsamband íslenskra kvennakóra
- Flottar veiðiflugur flugugallerí
- Olíuverð hægt að fylgjast með olíuverði
Börnin
Bloggvinir
-
holmdish
-
tigercopper
-
liljabolla
-
blavatn
-
totad
-
kruttina
-
gunnagusta
-
hlini
-
christinemarie
-
skordalsbrynja
-
gudrununa
-
hross
-
vilma
-
skelfingmodur
-
jeg
-
atvinnulaus
-
saedishaf
-
athena
-
sigrunsigur
-
maggatrausta
-
elina
-
bjarkitryggva
-
bjarnihardar
-
ingahel-matur
-
curvychic
-
gattin
-
pensillinn
-
songfuglinn
-
audurproppe
-
topplistinn
-
gudrunjona
-
hamingjustundir
Apríl 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.4.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 16
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar