Nú vil ég fá reikniformúlu bensínstöðvanna uppá yfirborðið, hún getur ekki verið leyndarmál því félögin eru öll með sömu formúlu. En ég fór að reikna og komst að því að bensínverð hér lækkar ekki í samræmi við bensínverð "á erlendum mörkuðum".
Í sumar kostaði bensíntunnan 147$, dollarinn var þá 77 ísl. kr. þannig að bensíntunnan kostaði 11,319 ísl kr. Bensínlítrinn hér kostaði þá 179,90 kr.
Núna kostar bensíntunnan 44,5$ og dollarinn er á 122 ísl. kr. Þannig að í dag kostar bensíntunnan 5,429 kr. Bensínlítrinn hér kostar 141,4.
Lækkun tunnu er um 52% en lækkun á bensínverði er um 19%.
HVAR ER MISMUNURINN?
HVER ER REIKNIFORMÚLA BENSÍNFÉLAGANNA?
Það verður að gera eitthvað í alvörunni, þeir geta ekki ALLIR verið með sama háa verðið og enginn segir neitt. Er kannski ennþá verið að borga forstjórunum ofurlaun? En laun forstjórana eru skv síðustu skattaskírslu þannig; forstjóri Olís fær mest: 2,960,410 kr. á mánuði. N1 borgar sínum forstjóra; 2,726,977 kr. á mánuði, en Skeljungur borgar minnst eða bara 2,514,040 kr.
VIÐ NEYTENDUR ÆTTUM AÐ MÓTMÆLA ÞESSU - LÁTA Í OKKUR HEYRA OG HÆTTA AÐ TAKA ÞÁTT Í ÞESSARI VITLEYSU ÞEYGJANDI OG HLJÓÐALAUST.
Stjórnmál og samfélag | Mánudagur, 22. desember 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
..... komst að þessu þegar ég las blogg kollega míns og ég hef kennt reykleysinu um þetta. Síðan ég hætti..... þá hef ég verið kvefuð og hnerrað og hóstað eins og ég veit ekki hver.
Nú verður bara tekið á þessu og hugsað um eitthvað annað - aattsjúú
![]() |
Hnerrandi kynlíf? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Laugardagur, 20. desember 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
... þetta er yfirskrift tónleika Kvennakórs Hafnarfjarðar þessi jólin. Elísabet Waage hörpuleikari leikur með okkur ásamt Hildi Þórðardóttir flautuleikara og ég get lofað fallegum tónleikum. Þeir verða fimmtudagskvöldið 11. desember kl: 20:00 í Víðistaðakirkju og kostar miðinn aðeins 1500 kr.
... það gefur manni svo margt að hlusta á fallega tónlist og það gefur mér mjög mikið að syngja fallega tónlist. Bara koma og njóta!
Menning og listir | Sunnudagur, 7. desember 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
.......... krónisk laziness og malign computer disease. Svo sé ég bara í stjörnuspánni fyrir daginn í dag að ég get verið afar góð í að gera ekkert. Og ég hélt að þetta væri leti og tölvusýki. Ég hangi nefninlega í tölvunni öll kvöld og þegar ég á frí eins og í morgun þá er mín bara að lesa blogg hægri vinstri og á annaramanna facebook. Er þetta normal? Nei, ekki þegar ýmislegt bíður manns: Húsverkin komplett, læra texta fyrir tónleika í næstu viku, þvottur............ og svo videre!
Takk fyrir - ég er sem sagt góð í að gera ekkert. Ég er þó góð í einhverju!
Dægurmál | Fimmtudagur, 4. desember 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Flugfélagið er búið að leggja í miklar breytingar sem eru misheppnaðar svo vægt sé til orða tekið. Tek sem dæmi með matinn, nú er ekkert fyrir þá sem borða grænmetisfæði. Takk fyrir - bara kjötætur sem fá að kaupa mat í flugvélinni - hinir koma með nesti. Þetta steikar-dæmi sem var auglýst þvílíkt (einhver steikarsamloka) er svo bara fyrir Ameríkuflugið takk fyrir. Salatið sem líka var auglýst er líka bara fyrir Ameríkuflugið - er kannski kjúklingur í salatinu - ég bara spyr?
Sætin eru hörð og ekki gott að sitja lengi í þeim og þess utan er einhver járnstöng undir miðju sætinu sem maður finnur fyrir. Flugfreyjurnar sögðu mér að það væri kvartað undan sætunum, sérstaklega á löngum flugleiðum. Svo þarf maður að kaupa sér kodda og teppi.
Flugfreyjur eru lengur að afgreiða matinn og þurfa að standa í þessari peningaumsýslu. Þetta eru breytingar sem eru ekki til góðs. Ég hélt einhvernveginn að Icelandair væri svona "fínt" flugfélag og vildi hafa fína þjónustu - en það er ekki. Að vísu voru flugfreyjurnar bara fínar bæði til og frá Frankfurt og enginn hroki í gangi þar á bæ. Icelandair er eins og lággjalda flugfélögin nema þeir eru með hágjalda verðskrá.
En ég er samt fegin á meðan Icelandair lifir - en þessar breytingar eru ekki til að bæta standardinn hjá flugfélaginu - en kannski verður reksturinn betri fyrir vikið.
Ferðalög | Miðvikudagur, 3. desember 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Ferðalög | Þriðjudagur, 2. desember 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Dægurmál | Þriðjudagur, 25. nóvember 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Dægurmál | Sunnudagur, 16. nóvember 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Dægurmál | Föstudagur, 14. nóvember 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Ferðalög | Laugardagur, 8. nóvember 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Tenglar
vefslóðir
- Kvennakór Hafnarfjarðar Kvennakór Hafnarfjarðar - góður kór
- Sá fimmtugi Sá fimmtugi á facebook
- Gígjan Landsamband íslenskra kvennakóra
- Flottar veiðiflugur flugugallerí
- Olíuverð hægt að fylgjast með olíuverði
Börnin
Bloggvinir
-
holmdish
-
tigercopper
-
liljabolla
-
blavatn
-
totad
-
kruttina
-
gunnagusta
-
hlini
-
christinemarie
-
skordalsbrynja
-
gudrununa
-
hross
-
vilma
-
skelfingmodur
-
jeg
-
atvinnulaus
-
saedishaf
-
athena
-
sigrunsigur
-
maggatrausta
-
elina
-
bjarkitryggva
-
bjarnihardar
-
ingahel-matur
-
curvychic
-
gattin
-
pensillinn
-
songfuglinn
-
audurproppe
-
topplistinn
-
gudrunjona
-
hamingjustundir
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar