Áðan sat ég úti á svölum með kaffið mitt og horfði á norðurljósin dansa innan um stjörnurnar, nýkomin úr brennheitu freyðibaði með kertaljós og alles. Þvílík fegurð með sjávarniðinn í bakgrunni. Húsið okkar er bakhús og það er ekkert byggt fyrir aftan okkur - bara móinn og sjávarkamburinn. Það er bara ekki hægt að kvarta yfir neinu þegar maður hefur svona útsýni yfir snæviþaktann móann og náttúruundur á himninum.
Ég hafði ekki gert mér grein fyrir að norðurljósin væru ekki allstaðar í heiminum fyrr en Bretinn minn hann Craig (hennar Hjördísar minnar) sagðist aldrei hafa séð norðurljós. Hann er búin að ferðast út um allann heim drengurinn og hlakkaði svo til að sjá norðurljós þegar hann kom til Íslands.
Nú er ég sem sagt tilbúinn í rúmið með "skyndibita fyrir sálina" sem er besta bókin sem ég hef lesið - enda les ég hana afturábak og áfram. Svo sofnar maður jákvæður með norðurljósin dansandi í höfðinu.
Góða nótt allir mínir vinir
Dægurmál | Þriðjudagur, 3. febrúar 2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Setti inn nokkrar myndir af peysunum, sem ég hef prjónað. Þetta er bara brot af því sem ég hef gert. Ég bý til uppskriftirnar sjálf en með lopapeysurnar hef ég lykkjufjöldann og úrtökur úr Lopa-bókunum.
Skemmtilegast við prjónaskapinn er að búa til peysuna frá grunni, raða saman munstri og litum, rekja upp og byrja aftur....... s.s. hafa smá vesen.
Set kannski inn fleiri myndir ...........seinna
Góða helgi allir mínir vinir
Dægurmál | Laugardagur, 31. janúar 2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Núverandi hugmyndir sem miða að því að segja upp fólki og hræra í vaktakerfinu sparar kannski eitthvað - en þjónustan kemur þá til með að minnka til muna. Þar fyrir utan verður ekkert hrært í neinu hjá "sumum". Ég er með einfalda leið sem kannski mundi minnka bilið á milli þeirra allra lægstu og allra hæstu - eða hvað? Alla vega gengur þetta yfir alla - ekki bara þá sem vinna á gólfinu.
Strípuð launalækkun á laun yfir 350 þúsund finnst mér vera raunhæfur kostur. Ekki hreyfa við lægstu laununum. Þetta þýðir að yfirvinna og vaktaálag lækkar líka.
yfir 350.000 = 10% lækkun
yfir 700.000 = 15% lækkun og
yfir 1.000.000 = 20% lækkun
þetta myndi spara heilan helling - er einfalt í sniðum, en þyrfti að vera tímasett - t.d. í eitt ár í senn.
Fjármál | Miðvikudagur, 28. janúar 2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
..... að eitthvað er að gerast í þjóðmálunum - vona samt að ekkert verði gert í fljótfærni. Tek hattinn ofan fyrir viðskiptaráðherra, sérstaklega fyrir að nú hefur Fjármálaeftirlitið tekið pokann sinn.
Það er samt eitt sem ég ekki skil og það er að yfirmaður Fjármálaeftirlitsins hættir ekki fyrr en 1. mars og þar að auki fær hann laun í eitt ár. Launin eru 17oo þúsund á mánuði - kannski svona há því hann ber einhverja ábyrgð. En hvar er ábyrgðin? Á hann ekki að hætta NÚNA? Og taka þar með ábyrgð. Það er eitthvað sem ég ekki skil. Kannski þarf hann að "ganga frá eftir sig" - bara hugmynd.
Annars er bloggstífla hjá frúnni, dagarnir líða bara og ég hef ekkert að segja. Þetta hefur verið vika heimsókna og hittings - maður hittir ekki bara fólk á facebook, sem betur fer. Samt er gaman hvað maður grefur upp gamla vini á facebook.
Elskurnar mínar, hafið það gott og njótið vikunnar sem framundan er.
Bloggar | Sunnudagur, 25. janúar 2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
...... og hugsaði hvort það væri hægt að deyja úr rolugangi og leti. Nennti ekki út , nennti ekki að laga til - sólin skein á stigann og undir hann þvílíkt ryk samankomið á einum stað.
Þá allt í einu koma fjórir myndarlegir og draga mig út. Ég rétt náði að klæða mig í lopann og snjóbuxurnar og reima á mig Scarpa. Setti svo þessa fjóra myndarlegu í eyrað (og heyrnartækið í hitt) og lagði af stað. Þetta voru Il Divo sem drógu mig út í sólina og sungu fyrir mig allann tímann
. Þeir fara oft með mér út að labba - fínir göngufélagar. Það er annar myndarlegur sem dregur mig stundum út að ganga, en hann er blindur - ég þarf ekki að leiða hann, því hann er farin að rata svo vel um Álftanesið
Þegar ég kom inn þá skein sólin ekki lengur á stigann og ég sá ekkert ryk.
Lífstíll | Sunnudagur, 18. janúar 2009 (breytt kl. 16:05) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Fjármál | Fimmtudagur, 15. janúar 2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Lífstíll | Miðvikudagur, 14. janúar 2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Bloggar | Laugardagur, 3. janúar 2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Lífstíll | Föstudagur, 26. desember 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Tónlist | Miðvikudagur, 24. desember 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Tenglar
vefslóðir
- Kvennakór Hafnarfjarðar Kvennakór Hafnarfjarðar - góður kór
- Sá fimmtugi Sá fimmtugi á facebook
- Gígjan Landsamband íslenskra kvennakóra
- Flottar veiðiflugur flugugallerí
- Olíuverð hægt að fylgjast með olíuverði
Börnin
Bloggvinir
-
holmdish
-
tigercopper
-
liljabolla
-
blavatn
-
totad
-
kruttina
-
gunnagusta
-
hlini
-
christinemarie
-
skordalsbrynja
-
gudrununa
-
hross
-
vilma
-
skelfingmodur
-
jeg
-
atvinnulaus
-
saedishaf
-
athena
-
sigrunsigur
-
maggatrausta
-
elina
-
bjarkitryggva
-
bjarnihardar
-
ingahel-matur
-
curvychic
-
gattin
-
pensillinn
-
songfuglinn
-
audurproppe
-
topplistinn
-
gudrunjona
-
hamingjustundir
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar