Ég er með hugmynd af sparnaði í ríkisrekstrinum!

Núverandi hugmyndir sem miða að því að segja upp fólki og hræra í vaktakerfinu sparar kannski eitthvað - en þjónustan kemur þá til með að minnka til muna. Þar fyrir utan verður ekkert hrært í neinu hjá "sumum". Ég er með einfalda leið sem kannski mundi minnka bilið á milli þeirra allra lægstu og allra hæstu - eða hvað? Alla vega gengur þetta yfir alla - ekki bara þá sem vinna á gólfinu.

Strípuð launalækkun á laun yfir 350 þúsund finnst mér vera raunhæfur kostur. Ekki hreyfa við lægstu laununum. Þetta þýðir að yfirvinna og vaktaálag lækkar líka.

yfir 350.000 = 10% lækkun

yfir 700.000 = 15% lækkun og

yfir 1.000.000 = 20% lækkun

þetta myndi spara heilan helling - er einfalt í sniðum, en þyrfti að vera tímasett - t.d. í eitt ár í senn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

tek undir

Hólmdís Hjartardóttir, 28.1.2009 kl. 19:58

2 Smámynd: Guðrún Ágústa Einarsdóttir

Sammála...það má lækka laun ráðamanna.

Guðrún Ágústa Einarsdóttir, 28.1.2009 kl. 22:35

3 Smámynd: Auður Proppé

Góð hugmynd

Auður Proppé, 28.1.2009 kl. 22:48

4 Smámynd: Aprílrós

Já tek undir þetta ,

Aprílrós, 28.1.2009 kl. 23:21

5 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Sammála. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 29.1.2009 kl. 00:53

6 Smámynd: Guðrún Una Jónsdóttir

Ekki svo vitlaust Sigrún. Ég myndi semsé sleppa við lækkun miðað við þessar tillögur. Eftir 4 ára háskólanám, 2 ára framhaldsnám í gjörgæsluhjúkrun og 20 á starfsreynslu er ég með talsvert lægri laun en lægstu tölu sem þú nefnir. Ég fór náttúrulega ekki í hjúkrun til að verða auðug (allavega ekki af peningum). Það gera líklega fæstir.

Svo held ég að það séu til ýmsar óþarfa stöður í heilbrigðiskerfinu sem koma ekkert nálægt klínikkinni ,sem mættu missa sín ,allavega á þessum síðustu og verstu tímum. En þá mundu að sjálfsögðu einhverjir þurfa að taka pokann sinn....

Guðrún Una Jónsdóttir, 31.1.2009 kl. 03:20

7 Smámynd: Sigrún Óskars

Sigrún, ég sjálf er með Bs í hjúkrun og framhaldsnám frá Háskólanum í skurðhjúkrun, 26 ára starfsreynslu og næ heldur ekki 350 þúsund í laun á mánuði. Við verðum víst aldrei ríkar af peningum.

Sigrún Óskars, 31.1.2009 kl. 09:10

8 Smámynd: Ragnheiður

Já þetta er einföld og ágæt hugmynd, verst að toppunum dettur aldrei í hug svona einfaldat hugmyndir !

Þeir reka alltaf bara skúringaliðið!

Ragnheiður , 31.1.2009 kl. 10:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband