KONUR sýnum samtakamátt okkar......

..... og förum á

http://is.isci.is

og skrifum undir. 

hægt er að lesa um verkefnið hér http://is.isci.is/Lesa/92

Auður Guðjónsdóttir á það skilið af okkur konum að við leggjum henni lið á síðustu metrunum - það gæti orðið til þess að tillaga til Norðurlandaráðs verði tekin fyrir og samþykkt.

Í stórum dráttum er efni tillögunnar að Norðurlandaráð setji á stofn starfshóp lækna og vísindamanna sem hafi það hlutverk að skoða norrænar og aðrar rannsóknir og meðferðir á mænuskaða og gera tillögur um úrbætur. 

Konur - sýnum samtakamáttinn og skrifum undir.

Eigið góða viku.


einn góður fyrir helgina.....

-Maður nokkur var staddur í Hagkaupum að kaupa sér kjúkling þegar gullfalleg

kona, sem stóð við kælinn, veifaði í hann og brosti til hans. Hann varð

hálfvandræðalegur, en gekk til hennar og spurði hvort þau þekktust. "Já, ég

er ekki frá því að þú sért pabbi eins stráksins míns" svaraði hún.

Varð nú okkar maður heldur betur vandræðalegur, hrökk allnokkuð við og

stamaði klúðurslega út úr sér "ha... ert þú stripparinn á Bóhem sem ég

dúndraði í steggjapartíinu mínu fyrir framan alla vini mína og spreyjaði

með þeyttum rjóma meðan þú tróðst agúrku upp í rassgatið á mér... ó mæ god,

ég þekkti þig ekki!"

Konan svaraði svipbrigðalaust:

"Nei, ég er umsjónarkennari sonar þíns!"


Eru byrjunarlaun presta virkilega 230.000 kr hærri en leikskólakennara?

 

ég held að það þurfi að taka til í launamálum hjá "ríkinu" ef þetta er satt. 

ég er ekki að segja að laun presta séu of há, en af hverju er ekki sömu laun fyrir svipað nám.

ég er t.d. með framhaldsnám í Háskóla og 29 ára starfsreynslu sem hjúkrunarfræðingur og mín laun eru langt fyrir neðan byrjunarlaun presta.

ég trúi þessu bara ekki - trúið þið þessu??

 

 

Byrjunarlaun sjúkraliða 214.000
Byrjunarlaun lögreglumanna 220.00
Byrjunalaun slökkviliðsmanna 243.000
Byrjunarlaun leikskólakennara 247.000
Byrjunarlaun hjúkrunarfræðinga 250. 000
Byrjunarlaun presta 474.000


mbl.is Ekki deilt um framkvæmdina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

þetta er gömul frétt.........

 


... í fyrrasumar þá kom Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn með þessa hugmynd að breyta virðisaukaskattskerfinu okkar. Hækka skatt á matvælum í 14% og hækka skatt á bókum í 25,5% 

Steingrímur fjármálaráðherra hefur kannski ekki þorað að breyta þessu þá.....  en núna er hann hvort sem er með allt niðrum sig og getur kýlt á þetta.

Þetta er líka alveg í stíl við það sem ríkisstjórnin ætlaði að gera... eða hvað ??

http://www.sa.is/frettir/eldra/nr/4911/

 http://www.mbl.is/frettir/sjonvarp/50235/


mbl.is Virðisaukaskattshækkun á mat?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

vona bara að þetta sé ekki "búðasýning" eins og undanfarið....

.... en ég ætla ekki að fara þetta árið. Mér finnst þessi sýning hafa verið fyrst og fremst sölusýning;

maður borgar inn og svo skoðar maður "búðirnar" og "fjöldaframleiðslu". Verslanir eru mikið með bása þarna og eru bara að selja á næstum sama prís og í sjálfum verslununum.

Mér finnst vanta "handverkskonur" svona eins og mig Wink sem væru að "sýna" ekki selja.

 

 


mbl.is Handverkshátíð í Hrafnagili um helgina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"auðveld" ganga á Esjuna

Ég fór í fyrsta sinn upp að Steini í dag, sem á að vera auðveld ganga samkvæmt skiltunum sem eru við göngustíginn. Mér fannst þetta ekki auðvelt, enda labba ég mest á jafnsléttu hérna á Álftanesinu. Eftir þessa Esjugöngu er Helgafell "rúmlega hóll" -...

minna en 1% lækkun - er þetta frétt ??

NEI en það væri frétt ef lækkunin væri 8 krónur, sem væri í samræmi við verðlækkun erlendis og miðað við gengi dollars. Þeir eru bara að auka álagninguna hjá sér og eru samtaka í því. Alltaf jafn skrítið að allir breyta verðinu hjá sér sama daginn og um...

Þeir lækka þá líklegast í dag.....

...... allavega ættu þeir að geta það - nema þeir vilji hækka ennþá meira álagninguna hjá sér. Ef skoðuð er staðan um miðjan júní þegar bensínverð var 236,3 kr. hjá Shell þá var olíuverð per tunnu svipað og nú og dollarinn var líka tæplega 117 kr. Núna...

gisting í Mýrdalnum gefin upp í evrum......

....... ætli maður þurfi að borga í evrum eða hvað?? Svo kvarta þeir um "NOKKUR HUNDRUÐ MILLJÓNA TJÓN" sjá hér Spurning er hvort þetta séu milljónir evra eða milljónir króna ?? Og ef þeir í Mýrdalnum eru að tapa nokkur hundruð milljónum á ca 2 vikum þá...

spínat, pera, hvítlaukur og olía.....

.... henti þessu í blandarann og viti menn.............. æðislegt "mauk" sem ég set oná brauð í staðinn fyrir smjör. Nota þetta líka sem sósu með mat. Þetta er rosalega gott....... prófið bara. Á myndinni er maukið komið í krukku .......

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband