Færsluflokkur: Ferðalög
Þvílík snilld sem þetta snjallsíma-forrit er og ættu allir sem ganga á fjöll að ná sér í svona.
Þetta er ókeypis og það er auðvelt að sækja þetta:
http://www.112.is/forsidu-frettir/nr/551
Mínir menn er með þetta í sínum símum - en þar sem þeir eru "tækjaóðir" menn þá eru þeir líka með GPS tæki, svo ég er nokkurn vegin örugg með þá
Góða helgi alle sammen
Ferðalög | Föstudagur, 9. nóvember 2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Ég fór í fyrsta sinn upp að Steini í dag, sem á að vera auðveld ganga samkvæmt skiltunum sem eru við göngustíginn. Mér fannst þetta ekki auðvelt, enda labba ég mest á jafnsléttu hérna á Álftanesinu.
Eftir þessa Esjugöngu er Helgafell "rúmlega hóll" - Mosfell og Úlfarsfell eru bara "hólar".
Í næstu viku er ég að fara í þýsku alpana að ganga - en það eru "auðveldar" göngur og mjög spennandi. Verð á fínu skíðahóteli með sauna og alles. Þetta er ferð fyrir fólk sem er "heilbrigt og getur hreyft sig" samkvæmt auglýsingu. Fyrst ég fór upp að steini á 88 mínútum þá get ég sett mig í þennan flokk - ekki satt?
Ferðalög | Miðvikudagur, 3. ágúst 2011 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
....... ætli maður þurfi að borga í evrum eða hvað??
Svo kvarta þeir um "NOKKUR HUNDRUÐ MILLJÓNA TJÓN" sjá hér
Spurning er hvort þetta séu milljónir evra eða milljónir króna ??
Og ef þeir í Mýrdalnum eru að tapa nokkur hundruð milljónum á ca 2 vikum þá hljóta þeir að græða í venjulegu árferði og borga af því skatt
bara til gamans þá kostar ein nótt í Mýrdalnum fyrir einn 120 Evrur
Ferðalög | Mánudagur, 11. júlí 2011 (breytt kl. 22:41) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
.... og ég fann nýjan stað sem ég hef ekki komið á. Skarðsvík, sem er á leiðinni á Öndverðarnes. Ljós sandur, klettar, hellir og alles - meira að segja borðstofusett til að borða nestið sitt.
Ég er búin að fara hundrað sinnum á Snæfellsnes og aldrei komið þangað - maður er alltaf að finna eitthvað nýtt.
Annað sem við fundum var völdundarhúsið á milli Djúpalónssands og Dritvíkur. Enginn veit hvað þetta er gamalt en talið er að verbúðarmenn hafi gert þetta sér til dægrastyttingar.
Það er Geocaching leikurinn sem leiðir mann á svona staði. Þetta er GPS leikur - alþjóðlegur og út um allan heim. Mjög skemmtilegur.
Ferðalög | Mánudagur, 4. júlí 2011 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Ferðalög | Sunnudagur, 10. október 2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Árlega fer ég á Snæfellsnesið - það er svo fallegt þar og maður kemur endurnærður til baka.
Fyrst er farið að bænum Ölkelda, en þar fær maður sér ölkelduvatn úr krananum, sem ábúendur hafa komið upp og er opið almenningi. Ölkelduvatn er öðruvísi á bragðið en venjulegt vatn og þykir mjög hollt. (ég gleymdi að taka mynd af krananum)
Steinafjaran mín við Langaholt er næsta stopp en þar eru fallegir steinar og magnað
brim. Ég get setið endalaust og horft á sjóinn. Ég get líka endalaust handfjatlað fallegu steinana og horft á kríurna. en á þessum tíma hefur maður regnhlíf með sér - tilbúin þegar krían kemur og "hneggjar" fyrir ofan hausinn á manni.
Kaffihúsið á Hellnum; Fjöruhúsið er besta kaffihús á Íslandi!! Kökurnar þar eru örugglega
bakaðar af kærleik því þær innihalda kærleikskaloríur og maður fitnar ekki af þeim. Svo spillir umhverfið ekki. Gulrótarkakan er guðdómleg.
Djúpalónssandur er magnaður staður - brim og steinar. Lukkusteinarnir mínir finnast akkúrat þar; litlir sléttir ávalir steinar - og auðvitað setti ég nokkra í vasann.
Svona dagsferð er svo skemmtileg, borða nestið við "borðstofuborðin" sem eru mjög víða. Ég er bara með gott nesti á svona ferðum, skinka- ostur-spínat og snakk á samlokuna. Prófið einhvern tímann að setja snakk (t.d. pringles) á samlokuna - það er æðislega gott.
Nú er maður endurnærður eftir svona ferð og tilbúin í "vinnuharkið" !! Það er endalaus orka á Snæfellsnesinu - nóg fyrir alla sem vilja.
Ferðalög | Sunnudagur, 20. júní 2010 (breytt kl. 12:38) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Við sendum fyrirspurn hvað kostaði að vera í litlum krúttlegum bústað með heitum potti yfir páskana. Jú svarið kom............ 15.000 sólarhringurinn = 75.000 yfir páskana.
Er þetta eðlilegt??
Núna skil ég af hverju er rifist um sumarbústaði stéttarfélaganna - en páskarnir kosta 21.000 kr. með heitum potti og alles. (stærri bústaður)
Verð bara heima og græði helling
Eigið góða viku og verum góð við hvort annað. Brosum, hrósum og leikum okkur.
Ferðalög | Mánudagur, 1. mars 2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
og ég ákvað að fara með þeim, Grétu, Þorbjörgu og Birnu - fjallageitunum. Lagt var af stað Ketilstíg uppað Arnarvatni en þar var beygt af Ketilstígnum og haldið hringinn í kringum vatnið. Þar eru Hattur og Hetta og fleiri "fjöll" en þessi fjöll eru bara rúmlega 300 metra há.
Gengið var upp og niður, upp og niður, prílað og prílað. Gengið á hverasvæði, hrauni, mýri, farið yfir rafmagnsgirðingar, klifrað í klettum - frekar fjölbreytt landslag þarna þótt mestur hluti sé gróðurlítill. Umhverfið er svo fallegt þarna og útsýnið til allra átta. Það var svo bjart að maður sá Eyjafjallajökul, Ingólfsfjall og ........ ég kann ekki að nefna allt.
Þegar við komum að bílnum höfðum við gengið í 4 klst og ég þorði ekki að minnast á hvað ég var þreytt - er bara ánægð að halda í við þær og að þær bjóði mér alltaf með.
Þetta er bara yndislegt að ganga svona úti í náttúrunni sérstaklega með skemmtilegum göngufélögum.
Ferðalög | Laugardagur, 22. ágúst 2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Í gær var ég úti í garði að vesenast þegar síminn hringdi. Það var Gréta vinkona............hæ, hvað segir þú .............við Þorbjörg ætlum í fjallgöngu................. ertu með.............?? Þar sem ég fór nú á Mosfell 2 dögum áður ákvað ég bara að skella mér................ já ég kem svara ég ............... fínt segir Gréta............... sjáumst á planinu kl.......... við ætlum á .............. Móskarðshnjúka.............. bæ bæ.
Ég ákvað að hætta garðvinnunni og undirbúa fjallgönguna, þetta fjall er víst eitthvað hærra en Mosfellið. Lopapeysan, regnjakkinn, djús í flösku, samloka, hnetur og rúsínur í poka - allt að verða klárt.
Þegar við komum að Skarðsá, þar sem gangan byrjar, reimum við á okkur skóna og setjum pokana á bakið. Þær fjallageiturnar með smá poka en ég með útbúnað fyrir FJALLGÖNGU. Til að gera langa sögu stutta þá var ég svo heppin að þær þurftu held ég þrisvar að taka myndir á leiðinni upp og einu sinni að pissa - svo ég gat smá kastað mæðinni. Ég hélt á tímabili að ég mundi ekki hafa þetta - þorði ekki að kíkja á símann hvort GSM samband væri ef hjartað færi út úr brjóstkassanum eins og allt útlit var fyrir. En einhvernveginn þokaðist þetta og á toppinn komst ég.
Þegar á toppinn var komið þá hvarf öll þreyta - þvílíkt útsýni og þvílíkur áfangi og þvílík gleði.
Sveitt, þreytt og ánægð með þær stöllur að láta sér detta í hug að bjóða mér með var haldið heim. Í freyðibaði og með sérrýglasið hvarf þreytan og mín sofnaði eins og engill.
Hvert dettur þeim svo næst í hug að fara??
Ferðalög | Þriðjudagur, 4. ágúst 2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég sem geng bara á jafnsléttu því Álftanesið er allt lárétt og ég geng ekki út fyrir það. En heppnin var með mér í gær og ég fór með 3 skemmtilegum fjallageitum uppá Mosfell. Já ég veit að fjallið nær ekki 300 metrum en það er fjall engu að síður.
Veðrið var gott, fyrir utan smá rok, gott útsýni yfir höfuðborgina og í allar áttir. Þessar fjallageitur hafa gengið uppá hvert fjallið á fætur öðru, með fjallabók í hanskahólfinu, sem þær merkja í.
En útiveran og góður félagsskapur er stórt atriði og ég skemmti mér vel.
Þegar komið var heim, þá var sá fimmtugi að grilla - unglingurinn, Nonni bróðir og mamma öll að gera klárt svo við Gréta gengum eiginlega beint að þessu frábæra matarborði.
Ís með sýrópi og rjóma í eftirmat - þarf einhver að passa línurnar - nei ekki sú sem fær sér svo bláberjagraut með rjóma í morgunmat
Ferðalög | Laugardagur, 1. ágúst 2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tenglar
vefslóðir
- Kvennakór Hafnarfjarðar Kvennakór Hafnarfjarðar - góður kór
- Sá fimmtugi Sá fimmtugi á facebook
- Gígjan Landsamband íslenskra kvennakóra
- Flottar veiðiflugur flugugallerí
- Olíuverð hægt að fylgjast með olíuverði
Börnin
Bloggvinir
- holmdish
- tigercopper
- liljabolla
- blavatn
- totad
- kruttina
- gunnagusta
- hlini
- christinemarie
- skordalsbrynja
- gudrununa
- hross
- vilma
- skelfingmodur
- jeg
- atvinnulaus
- saedishaf
- athena
- sigrunsigur
- maggatrausta
- elina
- bjarkitryggva
- bjarnihardar
- ingahel-matur
- curvychic
- gattin
- pensillinn
- songfuglinn
- audurproppe
- topplistinn
- gudrunjona
- hamingjustundir
Des. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 83312
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar