.................... Þú ert upp á þitt besta og getur nánast samið um hvað sem er því þú færð fólk svo auðveldlega á þitt band. Taktu þér tíma til þess að sinna sjálfum þér og byggja þig upp.
Seinni setningin á mjög vel við - þarf einmitt að gefa mér tíma í að sinna sjálfum mér.
Þetta kemur frá Mogganum - og ekki lýgur Mogginn
Lífstíll | Mánudagur, 7. desember 2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
................. sem ég hef látið oní mig um helgina. Þetta er cirka mánaðarskammtur - ekki minna.
Jólahlaðborðið á Loftleiðum á föstudagskvöldið var svo gott - fór örugglega átta ferðir og borðaði fyrir allan peninginn. Það er ótrúlegt hvað maður getur borðað - situr í nokkra klukkutíma borðar og talar og getur svo varla hneppt að sér kápunni þegar maður fer heim.
Hitaeiningarnar soguðust að mér og eltu mig alla helgina, neyddist til að kaupa sumar þeirra - þær voru svo aðgangsharðar.
Annars hefur helgin verið matur, söngur og gleði. Svo verð ég bara að ganga af mér hitaeiningarnar í vikunni - þ.e.a.s. ef ég nenni því
Hafið það sem allra best kæru vinir (og hinir líka) og njótið aðventunnar
Matur og drykkur | Sunnudagur, 6. desember 2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
............. Kvennakór Hafnarfjarðar syngur á Thorsplani klukkan tvö, syngjum skemmtileg jólalög eins og okkur einum er lagið.
Kvennakórinn er einnig með eitt jólahúsið og frábæran varning til sölu á hóflegu verði.
Ef fólk vill koma sér í jólastemningu - þá er bara að koma í Jólaþorpið og njóta.
![]() |
Jólastemning á Thorsplani |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menning og listir | Laugardagur, 5. desember 2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
........ í kvöld og á morgun verður Kvennakór Hafnarfjarðar með sölubás í Jólaþorpinu í Hafnarfirði. Margt sniðugt og flott verður til sölu t.d.
handverk úr þæfðri ull , smákökur, kryddbrauð, pönnukökur, sultur og margt fleira.
Verði verður stillt í hóf.
Það er alltaf stemning að fara á jólamarkað, hitta fólk sem er í jólaskapi og kaupa "öðruvísi" jólagjafir.
Kvennakórinn syngur í Jólaþorpinu kl. 14:00 og eins og svo margir vita þá erum við bara góðar.
Vona svo að allir hafi það sem allra best yfir helgina
Menning og listir | Föstudagur, 4. desember 2009 (breytt kl. 17:57) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Eitthvað kom fyrir á mínu heimili í gærkveldi - ég veit ekki hvað - en sá fimmtugi ruglaðist eitthvað í ríminu.
Þegar ég kom heim af raddæfingu í gærkveldi þá hafði sá fimmtugi staðið upp frá tölvunni fengið unglinginn í lið með sér og ........................................
rifið gólfdúkinn af eldhúsgólfinu og skrúfað af veggnum einn eldhússkáp. Segist svo ætla að flísaleggja eldhúsið. Ég er ekkert óánægð með þetta - enda hafa flísarnar beðið nógu lengi inni í þvottahúsi.
En ég hafði mestar áhyggjur af því að einhverju hefði verið hent - einhverju sem ég er að safna og ætla einhverntíman að nota - kannski . Tekið skal fram að þeir þorðu engu að henda, nema kexi sem var útrunnið 2008. Svo hafði ég auðvitað áhyggjur af feðgunum, hvað kom eiginlega yfir þá ??? Sá fimmtugi sá stjörnhrap um daginn - ætli það hafi eitthvað að segja
Núna er ég sem sagt að "taka til " í eldhússkápunum og losa þá - því það þarf að færa innréttinguna til að flísaleggja undir henni. Notaði tækifærið og byrjaði strax í gærkveldi að lesa bókina "Burt með draslið" og ætla að vera dugleg að henda - í alvörunni.
Fyrir konur eins og mig þá er þessi bók algjör biblía og verður að lesast reglulega. Annars væri ekkert pláss fyrir feðgana í húsinu fyrir dóti sem ég væri að sanka að mér og "geyma" og þá væri heldur ekkert flísalagt
Þeir eru auðvitað frábærir þessir feðgar og ég elska þá báða út af lífinu gerði það líka áður en framkvæmdir hófust
Hafið það gott allir saman - ég ætla að halda áfram með næst bestu bók í heimi: Burt með draslið.
Dægurmál | Fimmtudagur, 26. nóvember 2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Viðskipti og fjármál | Þriðjudagur, 24. nóvember 2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vinir og fjölskylda | Sunnudagur, 15. nóvember 2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Tónlist | Fimmtudagur, 12. nóvember 2009 (breytt kl. 17:55) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Lífstíll | Þriðjudagur, 20. október 2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Dægurmál | Mánudagur, 19. október 2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Tenglar
vefslóðir
- Kvennakór Hafnarfjarðar Kvennakór Hafnarfjarðar - góður kór
- Sá fimmtugi Sá fimmtugi á facebook
- Gígjan Landsamband íslenskra kvennakóra
- Flottar veiðiflugur flugugallerí
- Olíuverð hægt að fylgjast með olíuverði
Börnin
Bloggvinir
-
holmdish
-
tigercopper
-
liljabolla
-
blavatn
-
totad
-
kruttina
-
gunnagusta
-
hlini
-
christinemarie
-
skordalsbrynja
-
gudrununa
-
hross
-
vilma
-
skelfingmodur
-
jeg
-
atvinnulaus
-
saedishaf
-
athena
-
sigrunsigur
-
maggatrausta
-
elina
-
bjarkitryggva
-
bjarnihardar
-
ingahel-matur
-
curvychic
-
gattin
-
pensillinn
-
songfuglinn
-
audurproppe
-
topplistinn
-
gudrunjona
-
hamingjustundir
Apríl 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar