Vá! það hlýtur að vera tímafrekt að vera ég.........

...........allavega hef ég ekki gefið mér tíma til að blogga eða lesa bloggvinablogg. Búin að missa af öllu. En by the way ég er að pakka því á morgun flýg ég til Boston, gisti þar eina nótt og held áfram til Philadelphiu í USA. Verð í rúma viku í heimsókn hjá Bush. Aðallega verð ég á skurðþingi, sem fjallar um "scopiskar aðgerðir", sem sagt aðgerðir sem gerðar eru í speglun. Þetta verður bara spennandi, skemmtilegur ferðafélagi og flott hótel með sundlaug og alles. Það er líka skemmtilegt að fá þrif daglega, hendi bara handklæðinu á gólfið og fæ nýtt - þetta kallast húsmæðraorlof - tilbúin morgunmatur og ekkert uppvask. Eitthvað skoðar maður í búðarglugga (innanfrá) og verslar kannski eitthvað smá.

Jæja allir saman - hafið það gott á meðan ég hef það gott! Knús á línuna.


Gleðilega páska!

Home_Page_-_Easter

Gleðilega páska til allra nær og fjær.


Langur og góður dagur hjá mér.

Gerði bara helling í góða veðrinu; fór út að klippa stóru trén, hitti tjaldinn niður í fjöru (annar uppáhalds fuglinn minn), labbaði móann þveran og endilangann til að leita af hjólbörunum mínum sem fuku í óveðrinu í vetur, var að vona að þær væru í einhverjum skurðinum, sat úti og prjónaði, eldaði góðan mat og horfði á Dís á stöð2. 

Ég sá Dís í bíó hérna um árið og hún er þvílík snilld þessi mynd. Persónurnar eru svo sannfærandi og margar góðar setningar sem sitja eftir. Svo er boðskapur í myndinni, sem á erindi til allra. Meira að segja feðgarnir voru ánægðir með myndina (samt voru engar byssur).

Vona bara að  allir hafi það gott eins og ég.


Fórum Krísuvíkurleiðina í Bónus..

...í þessu fína veðri. Við Strandakirkju í Selvogi hittum við fullt af selum, sem lágu í sólbaði en einn synti í áttina til okkar - að drepast úr forvitni eins og við. Þar var líka fugl sem ég hef aldrei séð áður og veit ekki hvað hann heitir. Setti inn mynd af honum ásamt selum, feðgunum og mér. Eftir Eyrarbakka, Stokkseyri og Selfoss hring enduðum við í Bónus í Hveragerði.

Ef einhver veit hvað dökki fuglinn heitir þá væri gott að fá að vita það. Er þetta langvía?

fuglar v/Selvog


Byrjaði í dag á hreinsi-kúr.....

....en gafst upp á miðjum degi. Ég var nærri dáin úr hungri og verð því að vera óhreinsuð. Aldeilis ætlaði ég að taka á því - fá auka orku og ég veit ekki hvað og hvað. Kommon, það eru bara þrjár máltíðir í þessum kúr ( ég borða x6-7 á dag) en mig langaði samt að prófa, var búin að undirbúa mig þvílíkt í huganum - en sorrý þetta tókst ekki.

Svo er ég litandi á mér hárið eins og mér sé borgað fyrir það. Að upplagi er ég ljóshærð en fyrir nokkrum árum fór ég að lita á mér hárið rauðbrúnt sem klæðir mig bara vel. Seint í haust litaði ég mig aftur ljóshærða en fannst ég allt í einu orðin too much ljóska. Í gær setti ég í mig einhvern milli-lit og hárið varð eins og dautt dúkkuhár á litinn. Keypti gamla rauðbrúna og setti hann í mig í dag. Á kassa af ljósum lit ef mig langar að verða ljóshærð eftir helgi. Veit ekkert hvað ég vil; ljós vs jörp. Feðgunum finnst ég alltaf jafn falleg, sama hvernig hárið er á litinn.


Mannauðsmál á LSH.....

Í 24 stundum var fyrirsögnin: Heimta aukavinnu. Þar er átt við skurðhjúkrunarfræðinga á LSH og sagt frá því að þessi stétt hefði sagt upp í stórum stíl. 24 stundir talaði við yfirmann mannauðsmála og ég vona að blaðamaður hafi eitthvað misskilið, nema...

Það er kominn 9. mars.....

.....og við erum ekki búin að ákveða hvert við förum í sumarfrí. Við förum alltaf eitthvað til útlanda á sumrin, eitthvert í sól og gott veður og höfum ekki verið í vandræðum að velja okkur staði. Nennum ekki að fara á Íslendingahótel, finnst...

Maður þarf bara að keyra í korter.....

......þá er maður kominn útúr öllum skarkala og er einn í heiminum. Við fórum að Kleifarvatni í sólinni í gær, sem er með fallegri stöðum á landinu og algjört uppáhalds. Höfðum með okkur nesti og alles og settumst við borðstofuborð - þurftum bara að...

Góð þjónusta hjá Ríkis-stöðinni (Heyrnar og talmeinastöð Íslands)

Sem betur fer er ég búin að fá heyrnartækið mitt úr viðgerð. Það þurfti að skipta um mikrafón í tækinu. En þar sem ég er óvinnufær án heyrnartækis, þá fékk ég lánað annað og þvílíkur munur að vera með sitt eigið eða annara manna. En ég heyrði með þessu...

Bannað að toga í tólin!

Ég er fegin því að við búum ekki í Como á Ítalíu, því þar er sektað fyrir að laga á sér tólin úti á götu, samkvæmt nýjustu fréttum í 24 stundum. Hrædd um að feðgarnir væru blankir ef við byggjum þar, svo og margir íslenskir karlmenn. Þegar bretinn flutti...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband