Geðrækt - flott orð!

Þessu flottu orð fann ég á vef Lýðheilsustöðvarinnar undir linknum "um geðrækt". 

Fjöldi fólks glatar hlut sínum í hamingjunni. Ekki vegna þess að það hafi aldrei fundið hana,

heldur vegna þess að það nam aldrei staðar til að njóta hennar

(William Feather).

Njótið daganna Heart 


Ég hef alltaf sagt að veður er hugarfar......

....enda á ég klæðnað fyrir alls konar veður. Maður klæðir sig bara eftir veðri og drífur sig út. En samt nenni ég ekki út í garð í þessu roki. Ætlaði í dag að byrja vorklippinguna í garðinum, rafmagnssögin tilbúin í slaginn en ekki ég. Ég þoli ekki rok. Vona að veðrið verði öðruvísi á morgun. Verð bara inni í dag með prjónana og hlusta á rokið.

Til allra mæðra: Til hamingju með daginn!


Hvað eru menn að hugsa undir stýri?

Eða eru þeir að hugsa eitthvað? Karlinn á gráa jeppanum sem átti leið inní Reykjavík um leið og ég í morgun var að hugsa um eitthvað allt annað en aksturinn. Hann hreinlega stjórnaði umferðinni - keyrði á sínum hraða VINSTRA megin og ekki leið að komast framúr honum. Þegar hann kom að gatnamótum kringlumýrarbraut / miklabraut þá færði hann sig yfir á hægri. Alla leiðina í gegnum Garðabæ og Kópavog þá var löng röð fyrir aftan hann og bíllinn sem var næst honum lét hann vita að hann ætti að færa sig - flautaði og sikk saxaði fyrir aftan hann. Þvílíkt hvað svona ökumenn fara í taugarnar á mér. Kunna þeir ekki umferðareglurnar - maður fer framúr á vinstri. Svona karlar hugsa ekki lengra en fermingarbróðirinn nær - enda nær hann (fermingarbróðirinn) ekki fram fyrir húddið á bílnum.

Ef ég legg snemma af stað á morgnanna, þá er umferðin lítil sem engin og ég get keyrt á mínum hraða (sem er kannski of hraður). Það verður sko passað uppá það að fara snemma af stað.


Feðgarnir segjast hafa séð kríu!

Þeir eru ekki vanir að plata mig, ég er bara spæld af því ég hef ekki séð neina kríu. Hún er ekki vön að koma svona snemma. En ég er búin að sjá alla hina fuglana, þetta er mest spennandi við vorið - það er þegar fuglarnir koma og fuglasöngurinn byrjar. Það kemur stundum gæsa par í garðinn á kvöldin og leggur sig í miðjum garðinum. Annar fuglinn er á verði á meðan hinn setur hausinn undir væng og sefur. Við höldum að karlfuglinn sé á verðinum, hann er stærri - erum samt ekki viss. Það er endalaust hægt að horfa á þessa fugla, alla fuglanna þótt krían sé tignarlegust af þeim öllum. Tjaldurinn er samt í uppáhaldi.

Vorið er sem sagt komið í alvörunni fyrst krían er komin. Ég hlýt að sjá kríuna bráðum eins og feðgarnir.


Þegar yfirmenn eru óvinir starfsfólksins!

Það er mjög sérstakt þegar enginn trúnaður ríkir á milli yfirmanna og undirmanna á vinnustað. Hvar gerist það annarstaðar en hjá ríkisbatteríinu? Forstjórar LSH hafa ekki komið vel fram við skurð- og svæfingarhjúkrunarfræðinga, vaðið yfir okkur á skítugum skónum og sagt ósatt trekk í trekk í fjölmiðlum til að koma einhverju höggi á okkur. Við erum vondi kallinn. Þau vita ekki hvað er að gerast í alvörunni, reyna ekki að skilja það.

Þótt ég hafi dregið uppsögn mína til baka þá er ég ekki ánægð. Mér finnst framkoma yfirmanna þvílík að ég er miður mín. En vinnan við skurðhjúkrun er skemmtileg og ég er búin að mennta mig til slíkra starfa - þess vegna held ég áfram. En að vera niðurlægð svona af yfirmönnum er eitthvað sem ég á erfitt með að sætta mig við. Í þeirra sporum segði ég af mér NÚNA.

Næsta haust verður ráðinn nýr forstjóri og ef Björn Zöega verður ráðinn þá er eitthvað mikið að.

 


Frábært landsmót á Hornafirði

Ég á varla orð til að lýsa landsmótinu á Hornafirði um helgina. Kvennakórinn á Hornafirði á sko hrós skilið fyrir frábæra skipulagningu og hlýjar móttökur. Það gekk allt vel og tímasetningar voru uppá punkt og prik - geri aðrir betur. Maður söng og...

Skundað á landsmót íslenskra kvennakóra á Höfn!

Gleðilegt sumar allir nær og fjær með þakklæti fyrir veturinn. Í fyrramálið leggjum við í kvennakór Hafnarfjarðar af stað á landsmót íslenskra kvennakóra á Höfn í Hornafirði. Við ætlum að gefa okkur góðan tíma í keyrsluna, þurfum að stoppa í sjoppum til...

Algjör samstaða meðal hjúkrunarfræðinga!

Eins og áður hefur komið fram þá var hluta af ráðningarsamningi mínum (vaktalínunni) sagt upp og þar sem ég gat ekki samþykkt nýtt fyrirkomulag þá leit ég á það sem uppsögn. Með nýja fyrirkomulaginu þá verður að mínu mati skerðing á þjónustu og kaupið...

Tónleikar í dag í Víðistaðakirkju kl. 15

Kvennakór Hafnarfjarðar verður með tónleika í dag í víðistaðakirkju kl. 15 og bera þeir nafnið: "Þú hýri Hafnarfjörður". Hafnarfjarðarbær verður 100 ára í ár og syngjum við lög eftir Friðrik Bjarnason í því tilefni. Hjörleifur Valsson fiðluleikari spilar...

Sigrun i Ameriku

Eg hef haft thad gott i Ameriku, vedrid hefur leikid vid okkur. Skurdthingid var lika gott. Eitt sem stingur mig herna er feita folkid, thad er svo feitt ad eg hef aldrei sed annad eins. Enda eru matarskammtarnir thannig ad madur bordar taeplega helming....

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband