Einn góður!

Feðgar voru úti í búð þegar sonurinn kom auga á hillu fulla af smokkapökkum. Sonurinn spyr hvers vegna það væru til mismunandi pakkningar.Pabbinn svaraði: “Sko, sjáðu þennan hér, 3 í pakka? Það er fyrir menntaskólann. Tveir á föstudagskvöld og einn á laugardagskvöld”.

“Til hvers eru þá 6 í pakka?” spyr sonurinn.
“Það er notað þegar þú ert í háskóla. Tveir á föstudagskvöld, tveir á laugardagskvöld og tveir á sunnudagsmorgun” svaraði pabbinn.

“En til hvers eru þá 12 í pakka?” spyr sonurinn.
“Það er fyrir gifta menn” svaraði pabbinn. “Einn í janúar, einn í febrúar, einn í mars…..”


Ég útskrifaðist á laugardaginn....

....frá Háskóla Íslands, lauk sem sagt diplómanámi í skurðhjúkrun, sem er 30 eininga framhaldsnám. Þvílíkur léttir að vera búin, komin með skjalið í hendurnar. Ég var síðasti neminn að útskrifast þennan dag, hjúkrunardeildin er yngsta deildin og er því síðust í röðinni og ég var síðust í stafrófinu - allt í einu var ég bara ein á sviðinu í Háskólabíó, fannst ég eiga sviðið - Smile

Nú getur maður sinnt öðrum störfum, sem hafa verið settir á "hold". T.d. Gígjan, sem er landsamband íslenskra kvennakóra, þar er fullt að gerast og fullt framundan. Get nú einbeitt mér að þeirri vinnu. Alla vega kemur mér ekki til með að leiðast, þótt ritgerðir og skólabókalestur sé ekki með í myndinni lengur. Svo á ég mjög gott með að gera ekki neitt - bara njóta augnabliksins.


Það er komið nýtt "flakkarablogg"

Það er svo gaman að lesa "flakkarabloggið", hún lendir alltaf í einhverju skemmtilegu og skrifar skemmtilega um það. Nú er hún á Filippseyjum, að bræða af sér Kína-kuldann.

Ég er svo stolt af henni, hún er svo hugrökk og dugleg. Stundar "skóla lífsins" og flakkar út um allann heim. Tungumál eru einhvernvegin innbyggð í hana (útskrifaðist sem stúdent með 7 tungumál fyrir utan íslensku). Við foreldrarnir styðjum hana heilshugar í þessum ferðalögum, höfum líka notið góðs af þekkingu hennar þegar hún fór með okkur um Suður Ameríku f. 2 árum. Þá komst ég að því að með tungumálakunnáttunni og sjarmanum nær hún til fólksins, sýgur í sig menningu þeirra og lærir af þeim. Fer ekki hefðbundnar túrista-leiðir, fer sínar leiðir. Hún er einstök stelpan, enda köllum við hana Yndisfríð, því hún er ekki bara falleg hún er líka yndisleg.

 


Get ekki sofnað!

Ég get ekki sofnað, sit með sherry og les brandara sem ég er með í möppu á desktoppinu. Hér er einn góður:

Geir litli er sá klárasti í bekknum, og er alltaf fyrstur að klára prófin og spurningarblöðin.
Svo að hann hafi nú eitthvað að gera, eftir að hann var fyrstur búinn að svara spurningarblaði kennarans, ákvað kennarinn að spyrja hann aukaspurningar.“Geir minn, þú ert nú svo klár, að ég ætla að spyrja þig einnar aukaspurninar. Það eru 5 fuglar á grein, þú ert með byssu og skýtur einn fuglinn, hvað eru þá margir fuglar eftir ?
“Enginn”, svarar Geir.
“Hvað meinar þú… enginn ?”, spyr kennslukonan.
“Já, einn drepst, dettur til jarðar og hinir fljúga í burtu” segir Geir
Kennslukonan kinkar kolli og segir “svarið átti nú að vera 4, en mér líkar hvernig þú hugsar”
 
Örstuttu seinna réttir Geir litli upp hendi.
“Já Geir”
“Má ég spyrja þig einnar spurningar?”
“Endilega” segir kennslukonan.
“Ókei, 3 konur standa við ísbíl, og allar eru búnar að kaupa sér ís, ein af þeim sleikir ísinn, ein af þeim bítur í ísinn og ein af þeim sýgur ísinn. Hver þeirra er gift?” spyr Geir
Kennslukonan roðnar og segir, “Eee….ég veit ekki alveg, ætli það sé ekki sú sem sýgur ísinn?….eða eitthvað”
“Neeiiii” segir Geir litli, “það er sú sem er með giftingarhringinn, en mér líkar hvernig þú hugsar”
 

 


Það er til skýr lausn.....

Það þarf að hækka kaupið, það er svo augljóst. Lág laun er orsök manneklunnar, kaupið er kannski rúmlega atvinnuleysisbætur, er það boðlegt? 
mbl.is Staða heimaþjónustunnar metin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kolaportið

Ég fór í Kolaportið í dag, bara ein. Feðgarnir sögðu mér að Kolaportið sé bara fyrir fólk sem hefur ekkert annað að gera. Ég er ekki sammála því, þótt það sé lítið að gera hjá mér eftir að ég kláraði námið. En by the way, það er bara gaman að koma í...

Ég á alltof mikið af fötum!!

Þar sem ég var að klára lopapeysuna loksins þá ákvað ég að kaupa mér garn í vesti. Já hvernig vesti vantar mig? Fór inní skáp að gá og komst að því að ég á 15 vesti fyrir utan leðurvestið gamla sem ég fer aldrei í. Mig vantar sem sagt ekki vesti. En fór...

Dæmisaga - sem segir svo margt.

Sagt er að Bandaríkjamaður einn hafi verið staddur við höfnina í litlu sjávarþorpi í Mexíkó. Hann sá lítinn bát koma inn. Einn maður var um borð og margir stórir túnfiskar. Bandaríkjamaðurinn spurði fiskimanninn hve lengi hann hefði verið að veiða þetta....

Af því ég er orðin svo gáfuð þá.....

ætla ég að leggja fyrir fleiri gáfaða lítið reikningsdæmi: Taktu 1000, bættu við 40. Bættu svo við 1000. Síðan bætirðu við 30 og svo 1000. Bættu 20 við og svo 1000 og að síðustu bætirðu við 10. Hver er útkoman? Ef þið segið 5000 þá er það rangt og bara...

Náði prófinu......

.....sem betur fer. Meðaleinkunnin var 6,2 og maður þarf 6,0 til að ná. Ég fékk 7,0 og finnst ég hafa dúxað...he..he..Ég útskrifast sem sagt og þarf að æfa mig að taka við skírteininu með vinstri og heilsa rektor með hægri.. Annars er ég persónulega búin...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband