Fórum Krísuvíkurleiðina í Bónus..

...í þessu fína veðri. Við Strandakirkju í Selvogi hittum við fullt af selum, sem lágu í sólbaði en einn synti í áttina til okkar - að drepast úr forvitni eins og við. Þar var líka fugl sem ég hef aldrei séð áður og veit ekki hvað hann heitir. Setti inn mynd af honum ásamt selum, feðgunum og mér. Eftir Eyrarbakka, Stokkseyri og Selfoss hring enduðum við í Bónus í Hveragerði.

Ef einhver veit hvað dökki fuglinn heitir þá væri gott að fá að vita það. Er þetta langvía?

fuglar v/Selvog


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórhildur Daðadóttir

Já Krísuvíkurleiðinn er falleg.  Fórum hana oft herna í denn, hjónaleysin tvö, og hofðum gaman og gott af. 

P.S. Mér synist fuglinn á myndinni vera Skarfur.  Svona þér til upplýsingar. 

Þórhildur Daðadóttir, 17.3.2008 kl. 10:31

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

voðalega er langt í bónus

Hólmdís Hjartardóttir, 17.3.2008 kl. 11:54

3 Smámynd: Tiger

  Já, það virðist vera vor í lofti - bæði ilmar allt af vori og svo virðist hitastigið vera jafnara og bara uppávið. Hlakka mikið til sumarsins þó ég hafi fengið 7 mánaða sumar í fyrra, elska sólina og sumaril - en er þó líka mikið hrifinn af snjó og ófærð. Já, eins og Þórhildur segir sýnist mér þetta vera Skarfur en þó ekki gott að segja úr fjarlægð.

Tiger, 17.3.2008 kl. 17:05

4 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

Viltu benda mér á, hvar á myndinni eru feðgarnir???

Lilja G. Bolladóttir, 19.3.2008 kl. 03:25

5 Smámynd: Sigrún Óskars

Lilja, feðgarnir eru þessir 2 hvítu á myndinni he-he, nei þeir eru í myndaalbúmi og þú klikkar á kleifarvatn þá birtast þessir fínu feðgar.

Sigrún Óskars, 19.3.2008 kl. 20:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband