.... allt er nú til - bókhveitinúðlur - smakkaði þær í kvöld - það var Nings í matinn. "Bókhveiti núðlur innihalda mikið að trefjum og góðum snefilefnum og vítamínum" segir á nings.is. Þar er líka sagt frá fleiri tegundum og nú vill ég smakka þær allar.
"Konnyaku núðlur er heilsusprengja frá Japan" segja meira að segja að þetta sé Guðs gjöf - ég legg nú ekki meira á ykkur í bili. Jú annars
"Green tea núðlur eru unnar úr bókhveiti sem hefur verið bætt með dufti úr grænu tei" og þakka t.d. Japanir græna teinu langlífi sitt.
Mín ætlar í "heilsubúð" eftir helgi að versla.
Þessi færsla er í boði Nings
Annars var minn dagur mjög góður, fór út að ganga (klukkustundarganga) og hitti hestana á Grund, krumma í fjörunni, trukkabílstjóra fyrir aftan Sjávargötu og mann með hund. Þegar ég kom heim þá heilsaði hann mér hann Keli í næsta húsi - var samt ekki ánægður með mig og ég vona bara að lyktin af stóra hundinum sem ég heilsaði áður hafi verið orsökin. Sat svo undir svölunum í sólinni og prjónaði á meðan feðgarnir fóru með bílinn minn og settu vetrardekkin undir. þeir eru svo góðir við mig þessir feðgar enda hef ég alltaf verið þakklát fyrir þá.
Nonni uppáhaldsbróðir og Guðrún kona hans ásamt mömmu komu og borðuðu með okkur Nings - sem klikkar aldrei. Auðvitað var grænt te með - við ætlum öll að verða langlíf, eða þannig sko.
Njótum augnabliksins og verum góð við hvert annað
Meginflokkur: Matur og drykkur | Aukaflokkar: Dægurmál, Lífstíll, Vinir og fjölskylda | Laugardagur, 3. október 2009 (breytt kl. 23:56) | Facebook
Tenglar
vefslóðir
- Kvennakór Hafnarfjarðar Kvennakór Hafnarfjarðar - góður kór
- Sá fimmtugi Sá fimmtugi á facebook
- Gígjan Landsamband íslenskra kvennakóra
- Flottar veiðiflugur flugugallerí
- Olíuverð hægt að fylgjast með olíuverði
Börnin
Bloggvinir
- holmdish
- tigercopper
- liljabolla
- blavatn
- totad
- kruttina
- gunnagusta
- hlini
- christinemarie
- skordalsbrynja
- gudrununa
- hross
- vilma
- skelfingmodur
- jeg
- atvinnulaus
- saedishaf
- athena
- sigrunsigur
- maggatrausta
- elina
- bjarkitryggva
- bjarnihardar
- ingahel-matur
- curvychic
- gattin
- pensillinn
- songfuglinn
- audurproppe
- topplistinn
- gudrunjona
- hamingjustundir
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Nei það var ekki lyktin af hvutta- ég er bara svo sein að hugsa...hann er svakalega hræddur við fólk með húfur ! Hann er skrýtin skrúfa hann Keli minn
Ragnheiður , 4.10.2009 kl. 10:22
Umm, nú verð ég svöng
Ásdís Sigurðardóttir, 4.10.2009 kl. 15:05
Vetradekk ? Er komin vetur ?
Elín Helgadóttir, 4.10.2009 kl. 18:48
Skemmtileg lesning og hvetur mig til að prófa fleiri núðlutegundir ;)
Gurra (IP-tala skráð) 6.10.2009 kl. 10:06
Elín - það er komin vetur
Sigrún Óskars, 6.10.2009 kl. 16:39
Ragnheiður - hann Keli er bara dúlla - tek ofan fyrir honum næst
Sigrún Óskars, 6.10.2009 kl. 16:40
Aprílrós, 8.10.2009 kl. 19:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.