Enn einn góður dagur .......

................... í dag - sólin tekur á móti manni þegar maður opnar hurðina í morgun - yndislegt. Ég er svo heppin að geta farið út á náttkjólnum með kaffið mitt á morgnanna og horft á sólina og blómin. Er mín að verða væmin - þarf einhver ógleðistillandi - nei nei ................................. ég er búin.

Sonur minn er algjör snillingur að taka myndir - setti inn nokkrar sem ég "hnupplaði" frá honum. Myndirnar af býflugunum "mínum" eru æðislegar. Mér finnst býflugurnar svo skemmtilegar - get horft endalaust á þær og hlustað á suðið í þeim.

Farin út í garð Cool njótið helgarinnar allir saman og munum að vera góð við hvort annað.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sömuleiðis njóttu helgarinnar. Hér er 10 ára afmæli í dag svo ekki verður dagurinn beint afslappandi en það kemur dagur á eftir þessum. KV

(IP-tala skráð) 15.8.2009 kl. 11:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband