Þvílíkt veður....

sól og logn á Álftanesinu í kvöld. Var úti í garði að lakka steina og hlustaði á malið í sjónum. Einstaka kría flaug yfir og söng fyrir mig. Þetta er sko bara æðislegt.

Sá gamli á afmæli í dag.  Ég setti afmælisgjöfina hans út á kantstein fyrir framan hús og kortið á miðja stéttina svo hann sæi það þegar hann kæmi heim úr vinnunni.  Átti ekki pappír utan um gjöfina; rosaflottur álfur sem liggur með hendur fyrir aftan haus. Ekki það að sá gamli sé eitthvað álfs-legur, langt í frá, en hann liggur stundum svona makindalega.  

Í fréttum er þetta helst að tveir froskar voru gefnir saman. Það þurfti að halda þeim meðan á athöfninni stóð og þegar þeim var sleppt þá syntu þeir í sitthvora áttina. Meira að segja myndband af athöfninni. Þetta eru fréttirnar á mbl.is -  ætli það sé gúrkutíð?

Svo í lokin; til hamingju kollegar með úrslit kosninganna. Þetta sýnir að við viljum ekki yfirvinnu, viljum almennilegt fastakaup. Nú stöndum við saman - ekki spurning.  


Hef bara ekkert verið í tölvunni....

....nema ég kíki á póstinn minn. Það er Gígjan og Flakkarinn sem gætu verið með spennandi póst. Flakkarinn er í Víetnam þessa daganna (sjá heimasíðuna hennar til hægri). Rosalega hlakka ég til að knúsa hana þegar hún kemur heim - núna í sumar.

Annars er ég bara útí garði að dúlla mér - þar eru óþrjótandi verkefni, enda garðurinn þúsund fermetrar. En þetta er ekki bara dúll, ég á fullt í fangi með erfiðu garðverkin - hef t.d. komist að því að sögin sem ég klippi hekkið með þyngist með hverju árinu. Það endar með því að ég fæ mér svartan vöðvastæltan garðyrkjumann til að hjálpa mér. Strax farin að hlakka til!

Best fara bloggvina-hring, hef ekki gert það í langan tíma. Sjáumst þar Smile

ps. ég fer í svettið 29. júní.


Ég ætla að segja upp RÚV - tek ekki þátt í þessari vitleysu

Mér finnst RÚV fara yfir strikið með því að nota plús-rásina sem íþróttarás. Nei takk segi ég, enda horfi ég ekki á fótbolta. Hvað ætli mörg prósent þjóðarinnar horfi á fótboltann? Eru það nægilega margir til að réttlæta það að RÚV er undirlagt af fótbolta þessa daganna. Dropinn sem fyllir mælinn er að nota plús rásina líka, þeir geta ekki valið á milli leikja til að sýna beint, þá er bara plúsinn orðin íþróttarás.

Ég er á móti því að hafa ríkis-rás sem er í samkeppni við aðrar stöðvar, sem er ekki sanngjörn samkeppni, því við sem eigum sjónvarp erum skildug til að kaupa RÚV. Þetta væri eins og allir sem eiga póstkassa eða bréfalúgu væru skyldugir að kaupa ríkis-blaðið.

Á morgun hringi ég og segi upp áskrift af Ríkissjónvarpinu, tek ekki þátt í þessari vitleysu meir!


komumst ekki í svettið !

Við vinkonurnar komumst ekki í svettið í dag, það komast færri að en vilja - reynum síðar - ekki spurning. Maður verður að vita hvernig þetta er Smile. Í staðinn ætlum við bara að dúlla við hvor aðra, setja ektalit, strípur, djúpnæringu og svo videre. Borða góðan mat og kjafta frá okkur allt vit. Það er svo langt síðan við höfum gert þetta, en hér í den dúlluðum við svona við hvor aðra. Við þurfum sko ekki síður á þessari uppliftingu og litaskerpingu að halda núna - enda eldri.

Í gær var kórstjórinn minn, hún Erna fimmtug - þótt hún líti ekki út fyrir það. Við fórum 12 kórkonur og sungum fyrir hana í afmælisveislunni. Sungum afmælissönginn fjór-raddað fyrir utan hjá henni og nágrannar komu út til að athuga hvers lags væri. Allir veislugestir komu síðan út og við sungum úti í góðaveðrinu nokkur lög. Erna þurfti að vísu að ná í tónhvíslina sína til að gefa okkur þá tóna sem við báðum um. Ég held að hún hafi bara verið ánægð með okkur.

Í stjörnuspánni minni í gær stóð að ég ætti að skemmta fólki heimafyrir (var að lesa moggann frá í gær). Það hafa einhverjir lesið þetta því það var gestagangur hjá mér í gær, ég var alltaf að reyna taka fram tuskuna til að þrífa áður en kórkonurnar kæmu til mín að æfa sönginn. Á endanum var bara svona semi fínt hjá mér, vona að enginn hafi horft í hornin. Ég er heldur ekki týpan sem er með allt sleikt út úr dyrum, feðgarnir sem ég bý með hafa heldur ekki smekk fyrir því - það sést á umgengninni.  


Er einhver sem getur sagt mér ...........

frá þessu "svett" dæmi í indjánatjaldinu í Elliðárdalnum. Það er verið að reyna að fá mig í þetta og ég veit varla hvað þetta er - nema að ég svitna eitthvað rosalega. Svo hef ég heyrt að mennirnir sem eru með þetta eldi góðan mat og séu æðislegir. Þessi meðferð kostar 5000 kall og er 7 klst program. Meira veit ég ekki. Reyndi að "googla" þetta en það kom lítið út úr því.

Ef einhver hefur reynslu af þessu - má hinn sami segja mér frá. Takk


Að gefa með kærleika í hjarta - maður fær það til baka.

Ég er svo hrifin af sjálfshjálparbókum og mín uppáhalds er "skyndibitar fyrir sálina". Eftir að ég las hana þá uppgötvaði ég margt m.a. að ég á skítnógan pening. Og það er alveg satt. Ég á fyrir öllu sem ég þarf og meira til. Sagt er að peningarnir fara...

Tæknimaðurinn á Dylan var að leira!

Já, ég segi það satt hann var með bláan leir og mótaði hann annaðhvort í lófanum eða var að teygja hann tvist og bast. Inn á milli teygði hann úr sér, geyspaði og skoðaði svo símann sinn. Kannski var hann að eyða sms skilaboðum eða að senda sms - veit...

Mér var bent á þetta og birti þetta hérna .

Þetta kemur frá einni bloggvinkonu minni - munum að margt smátt gerir eitt stórt. Leggjumst öll á eitt og hjálpum þessari fjölskyldu fimmtudagur, 22 maí 2008 Sett hefur verið af stað söfnun vegna mikilla veikinda sem komið hafa upp hjá, Öldu Berglindi...

Burt með draslið!

Bókin "Burt með draslið" er algjör snilld fyrir fólk eins og mig. Ég á svo erfitt með að henda og láta frá mér dót en eftir lestur bókarinnar þá er allt auðveldara. Maður verður að vísu að lesa bókina reglulega til að minna sig á. Nú er ég einmitt að...

Migreni - hvað er til ráða?

Ef einhver veit ráð við migreni þá eru þau ráð vel þegin. Lá uppí sófa með sólgleraugu í allann gærdag. Tók allskonar sortir af verkjalyfjum og ekkert dugði. Ég þykist vita hvað "triggerar" migrenið mitt, sem er nýkomið til sögunar (fæ migreni á gamals...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband