Ég ætla að segja upp RÚV - tek ekki þátt í þessari vitleysu

Mér finnst RÚV fara yfir strikið með því að nota plús-rásina sem íþróttarás. Nei takk segi ég, enda horfi ég ekki á fótbolta. Hvað ætli mörg prósent þjóðarinnar horfi á fótboltann? Eru það nægilega margir til að réttlæta það að RÚV er undirlagt af fótbolta þessa daganna. Dropinn sem fyllir mælinn er að nota plús rásina líka, þeir geta ekki valið á milli leikja til að sýna beint, þá er bara plúsinn orðin íþróttarás.

Ég er á móti því að hafa ríkis-rás sem er í samkeppni við aðrar stöðvar, sem er ekki sanngjörn samkeppni, því við sem eigum sjónvarp erum skildug til að kaupa RÚV. Þetta væri eins og allir sem eiga póstkassa eða bréfalúgu væru skyldugir að kaupa ríkis-blaðið.

Á morgun hringi ég og segi upp áskrift af Ríkissjónvarpinu, tek ekki þátt í þessari vitleysu meir!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Oó ..á ég að biðja Steinar að lækka í fótboltanum ?

Ég er hinsvegar á móti skylduáskriftinni.

Ragnheiður , 17.6.2008 kl. 19:33

2 Smámynd: Söngfuglinn

Heyr, heyr.

Söngfuglinn, 17.6.2008 kl. 23:46

3 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Því miður er ekki hægt að segja upp áskriftinni, hún er skylda hvort sem manni líkar betur eða ver.

Er algjörlega sammála þér, finnst að þeir eigi að senda út boltan á sérrás. Hversu stór og fjölmennur skyldi markhópurinn vera  fyrir boltan?

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 18.6.2008 kl. 00:15

4 Smámynd: Aprílrós

Sammála að RUV eigi ekki skylduáskryft. ég væri fyrir lifandis löngu búin að segja henni upp ef ég gæti.

Guðrún Ing

Aprílrós, 18.6.2008 kl. 02:48

5 Smámynd: Þórhildur Daðadóttir

Svo eru sumir sem hafa ekki einu sinni val.  RÚV væri t.d. eina sjónvarpstöðin sem ég næði, ef ég væri ekki með gervihnattadisk. 

Já svona er þetta í sveitinni.

Þórhildur Daðadóttir, 18.6.2008 kl. 12:00

6 Smámynd: Guðrún Ágústa Einarsdóttir

já ég er svo sammála þér, það er hábölvað að borga fyrir eitthvað sem maður hefur ekki áhuga fyrir. Ég horfi t.d. aldrei á RÚV.. það er ekkert þar sem heillar mig.

Kv, Gunna.

Guðrún Ágústa Einarsdóttir, 18.6.2008 kl. 16:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband