Gæinn sem var að kenna mér á tækin í Hress horfði á mig eins og ég væri skrítin þegar ég sagði honum þetta. Ég geri í alvörunni ekki æfingar sem mér finnst leiðinlegar - o.k. hann hafði aðrar leiðir fyrir mig, eitthvað tæki sem reynir á magannfrá öllum hliðum. Blessaður drengurinn sem átti að kenna mér á tækin, gera eitthvað plan fyrir mig allt fyrir 15oo kr. Hann hafði engan sérstakan áhuga á þessu, gerði bara eitthvað, kallaði mig Sigríði (sagði honum hundrað sinnum að ég héti Sigrún) og spurði hvort ég væri komin til að létta mig. Varð smá móðguð því ég hélt að ég væri í kjörþyngd. Þegar hann rétti mér svo blaðið með æfingunum þá stóð SIGRíÐUR. Aumingja þessi Sigríður sem þarf að gera þessar æfingar. Ég geri bara það sem mér finnst skemmtilegt.
Annars gengur mér bara vel, reyklaus - dagur 3 og feðgarnir ennþá á lífi.
Flokkur: Lífstíll | Miðvikudagur, 3. september 2008 | Facebook
Tenglar
vefslóðir
- Kvennakór Hafnarfjarðar Kvennakór Hafnarfjarðar - góður kór
- Sá fimmtugi Sá fimmtugi á facebook
- Gígjan Landsamband íslenskra kvennakóra
- Flottar veiðiflugur flugugallerí
- Olíuverð hægt að fylgjast með olíuverði
Börnin
Bloggvinir
- holmdish
- tigercopper
- liljabolla
- blavatn
- totad
- kruttina
- gunnagusta
- hlini
- christinemarie
- skordalsbrynja
- gudrununa
- hross
- vilma
- skelfingmodur
- jeg
- atvinnulaus
- saedishaf
- athena
- sigrunsigur
- maggatrausta
- elina
- bjarkitryggva
- bjarnihardar
- ingahel-matur
- curvychic
- gattin
- pensillinn
- songfuglinn
- audurproppe
- topplistinn
- gudrunjona
- hamingjustundir
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
gangi þér vel Sigrún mín
Hólmdís Hjartardóttir, 3.9.2008 kl. 21:09
Líkamsrækt á að vera skemmtileg en ekki kvöð...en gangi þér rosalega vel Sig(ríður)rún mín hehehehe...ég bara varð... kv Gunna.
Guðrún Ágústa Einarsdóttir, 3.9.2008 kl. 21:18
Fyrirgefðu Sigrún mín, að ég skyldi skrópa í magaæfingarnar mínar í dag....svo þú hefur bara bæði fengið nafnið mitt og æfingarnar mínar. Er viss um að "Sigríðarmagaæfingar" eru langleiðinlegustu magaæfingar sem til eru.
Frábært hjá þér að vera reyklaus í dag, og ég óska feðgunum innilega til lukku fyrir að hafa lifað daginn af.
Gangi þér vel.
Sigríður Sigurðardóttir, 3.9.2008 kl. 21:24
jessss ég stend með þér, gerum bara það sem okkur finnst skemmtilegt, engar kvaðir hér takk fyrir, (nema við setjum þær sjálum okkur til handa)
til lukku með dag þrjú, stendur þig vel. knús frá Ísafirði
Sigrún Sigurðardóttir, 3.9.2008 kl. 22:02
Við erum flottastar í reykbindi
Gangi þér vel:)
Kolbrún Jónsdóttir, 3.9.2008 kl. 22:04
Já og rúðurnar eru allar heilar á hliðinni sem snýr að þér. Hehehe....en þú ert dugleg
Ragnheiður , 3.9.2008 kl. 22:59
hahaha þarna varstu heppin að vera ekki í þjálfun hjá Önnu systir Hún hefði sko ekki leyft þér að komast upp með þetta og áður en þú hefðir vitað af þá værir þú farin að gera svona æfingar. En ég segi að það er ekkert verra en þjálfari sem hefur ekki áhuga og finnst þetta nánast vera tímasóun. Tala nú ekki um þegar hann getur ekki einu sinni drullast til að muna hvað þú heitir!!!!!
Gangi þér annars þrusu vel tjelling. 1000 kossar inn í magaæfingalausa daginn þinn krútta.
Tína, 4.9.2008 kl. 09:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.