komumst ekki í svettið !

Við vinkonurnar komumst ekki í svettið í dag, það komast færri að en vilja - reynum síðar - ekki spurning. Maður verður að vita hvernig þetta er Smile. Í staðinn ætlum við bara að dúlla við hvor aðra, setja ektalit, strípur, djúpnæringu og svo videre. Borða góðan mat og kjafta frá okkur allt vit. Það er svo langt síðan við höfum gert þetta, en hér í den dúlluðum við svona við hvor aðra. Við þurfum sko ekki síður á þessari uppliftingu og litaskerpingu að halda núna - enda eldri.

Í gær var kórstjórinn minn, hún Erna fimmtug - þótt hún líti ekki út fyrir það. Við fórum 12 kórkonur og sungum fyrir hana í afmælisveislunni. Sungum afmælissönginn fjór-raddað fyrir utan hjá henni og nágrannar komu út til að athuga hvers lags væri. Allir veislugestir komu síðan út og við sungum úti í góðaveðrinu nokkur lög. Erna þurfti að vísu að ná í tónhvíslina sína til að gefa okkur þá tóna sem við báðum um. Ég held að hún hafi bara verið ánægð með okkur.

Í stjörnuspánni minni í gær stóð að ég ætti að skemmta fólki heimafyrir (var að lesa moggann frá í gær). Það hafa einhverjir lesið þetta því það var gestagangur hjá mér í gær, ég var alltaf að reyna taka fram tuskuna til að þrífa áður en kórkonurnar kæmu til mín að æfa sönginn. Á endanum var bara svona semi fínt hjá mér, vona að enginn hafi horft í hornin. Ég er heldur ekki týpan sem er með allt sleikt út úr dyrum, feðgarnir sem ég bý með hafa heldur ekki smekk fyrir því - það sést á umgengninni.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

Maður tekur hvort sem er alltaf meira eftir skítnum heima hjá sér, heldur en hjá öðrum, er það ekki??

Lilja G. Bolladóttir, 7.6.2008 kl. 15:12

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

ég horfi bara í mín eigin horn

Hólmdís Hjartardóttir, 7.6.2008 kl. 16:11

3 Smámynd: Guðrún Ágústa Einarsdóttir

Ekki er ég að spá í hornin hjá öðrum, en ég vil hafa allt á hreinu heima hjá mér...heheheh....;) kv Gunna.

Guðrún Ágústa Einarsdóttir, 8.6.2008 kl. 00:27

4 Smámynd: Aprílrós

Þótt það sé allt í drasli hjá mér þá er samt heint, og eins og þið segið að þá veit maður af því heima hjá sér. Svo er maður að fara að heimsækja vini sína en ekki draslið þegar maður fer til vina sinna, ekki satt ? Ég fer á flug i alsherjar tiltekt og þrif þegar ég er að fara halda veislu eða heimboð ;)

Kveðja Guðrún Ing

Aprílrós, 8.6.2008 kl. 01:12

5 Smámynd: Þórhildur Daðadóttir

Já ekki er ég nú duglegust manna að taka til, enda annað sem skiptir meira máli.

Þórhildur Daðadóttir, 9.6.2008 kl. 13:28

6 Smámynd: Tiger

  Örugglega alltaf gaman hjá ykkur kórfélögunum þegar þið hittist - og til lukku með stjórann. Gott að vita að þið getið dúllað hver við aðra sko *flaut* - eða þannig sko!

Veistu, ef fólk er að finna að drasli eða ryki þegar það er að heimsækja mann - þá á bara að rétt þeim tusku og segja þeim að laga það sem þeim finnst stinga mest í auga. Knús á þig Sigrún mín og hafðu það ljúft.

Tiger, 11.6.2008 kl. 03:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband