stofnanasamningur er röðun í launaflokka......

Hjúkrunarfræðingum á LSH er raðað í launaflokka 1 til 8 en alls eru launaflokkarnir 18.

Hjúkrunarfræðingur sem er með háskólapróf, 2ja ára framhaldsnám í Háskóla og 30 ára starfsreynslu er boðið 378.000 kr. á mánuði fyrir 100% vinnu á LSH. 

Eru það raunhæf laun?


mbl.is Enginn fundur í kjaradeilu hjúkrunarfræðinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

App fyrir ferðamenn

Þvílík snilld sem þetta snjallsíma-forrit er og ættu allir sem ganga á fjöll að ná sér í svona. 

Þetta er ókeypis og það er auðvelt að sækja þetta:

http://www.112.is/forsidu-frettir/nr/551

Mínir menn er með þetta í sínum símum - en þar sem þeir eru "tækjaóðir" menn þá eru þeir líka með GPS tæki, svo ég er nokkurn vegin örugg með þá Smile

 

Góða helgi alle sammen Grin


Persónukjör; var hún sérstaklega kosin eða kemur hún inn á atkvæðum Á-lista?

....tilheyra ekki atkvæðin sem þessi kona fékk Á-listanum? Þetta er algjörlega óskiljanlegt - Á-listinn fékk atkvæðin, ekki D-listinn.

Ég tek fram að ég þekki ekkert til í Rangárþingi ytra en svona er þetta líka á Alþingi - maður kýs einhvern flokk og vill að atkvæðið nýtist þar og þeirri stefnu sem þar ríkir. Mér þætti gaman að sjá hvar í lögum þessi "persónukjör" eru.

Þetta sýnir líka svart á hvítu að stjórnmálamenn hugsa bara um rassinn á sjálfum sér, ekki þá sem kusu þá. 

 


mbl.is Meirihlutinn fallinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver á sætið í bæjarstjórninni? Er kosið eftir flokkakerfi eða eru einstaklingar kosnir?

Mér finnst alltaf jafn skrítin þessi pólitík...... ekki bara pólitíkin í Garðinum.

Það er kosið eftir "flokkakerfi" þ.e. maður kýs flokk og stefnu hans, þótt auðvitað hafa einstaklingarnir í flokknum áhrif. En þegar fólkið í flokknum er komið í stjórn - er það þá óbundið flokknum? Getur bara farið í hvaða flokk sem er?

Á ekki "flokkurinn" sætið í bæjarstjórn - eða er það manneskjan sem var í flokknum????

Það væri mjög fróðlegt að sjá hvar í lögum það stendur að einstaklingurinn "eigi" sætið, hvort sem það er í bæjarstjórnum eða á Alþingi. 

Ég hef oft velt þessu fyrir mér og ég tek það fram að ég þekki ekkert pólitíkina á Garðinum.


mbl.is Pólitík hefur skemmt skólastarfið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ég vann t.d. 700 þús evrur í email lottói ............

........... netfangið mitt var dregið út í þýsku lottói og vinningurinn ekki af verri endanum 700 þúsund evrur - en sú heppni Tounge

þeir nota google translate og senda manni bréfið á íslensku, google translate þýðingarnar eru svo fyndnar, svo það er bara gaman að lesa þetta.

ég er með netfang sem er @com og ég fæ því oft allskonar bréf t.d. að Mr. Oskarsdottir hafi dáið frá mikilli fjárupphæð og verið sé að leita af ættingjum........ annars eru svona netfanga-vinningar algengir, þessi er bara óvenju hár.

en kannski eru einhverjir sem trúa þessu...... vonandi ekki - maður vinnur ekki í því sem maður tekur ekki þátt í Wink

ég spila alltaf í Lottó og er enn að bíða eftir að vinna Cool

 


mbl.is Ótrúlegt hvað hægt er að plata fólk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig er hægt að spara meira þegar aukning hefur orðið á þjónustunni?

ég bara spyr! Mér finnst komið að því að spyrja þá sem ráða s.s. ríkisvaldið - hvað vilja þeir fá fyrir peninginn sem þeir setja í Landspítalann. Aukning á þjónustu fyrir minni pening - hvernig getur það staðist? Hvaða þjónustu á að veita á LSH? Hverjum...

það eru forréttindi að vera ég.......

........ allavega að finnst mér það forréttindi að hafa ljósastauralaust svæði fyrir aftan húsið mitt, geta horft á stjörnurnar og norðurljósin. Ljósastaurar skemma þetta. Eftir 5 km göngu um Álftanesið, heitt bað í stóra baðkarinu mínu, þá er yndislegt...

lækkun "erlendis" rúm 10% - lækkun "hérlendis" minna en 1%

...... einn daginn gubba ég ! 6.ágúst í fyrra var bensínverð (shell) 198,5 kr. Þá kostaði tunnan af olíu 82$ og dollarinn var 117,2kr. í dag er bensínverð (shell) 236 kr. Olíutunnan kostar 79,64$ og dollarinn er 118,4 kr það munar 37,5 kr - svo segja...

stolið blogg um flottustu hjón Íslands

stal þessu af bloggsíðu dóttur minnar. Hún skrifaði þetta í tilefni 30 ára brúðkaupsafmælis okkar foreldra hennar: Titillinn er: Flottustu hjón Íslands "Í dag eru 30 ár síðan foreldrar mínir gengu í það heilaga. Það er ekki síður tilefni fyrir mig að...

frændrækni....

..... asnalegt orð - en ég er ekki mjög frændrækin. Fór samt í dag austur fyrir fjall til Gunnars frænda. Sá hann síðast fyrir 5 árum - er þetta hægt? Það er alltaf gaman að hitta fólkið sitt og ætti maður að gera það oftar - annars hættir maður að...

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband