Ég gæfi mikið fyrir að skilja verðlagningu olíufélaganna á Íslandi.
Nú í dag hækka öll þrjú félögin bensínið sitt í sömu krónutölu (og uppá sama aur), akkúrat þegar olían hefur verið að lækka - sjá mynd. Það er líka linkur hér til hliðar þar sem hægt er að fylgjast með olíuverði.
Þetta kallast ekki verðsamráð - þetta kallast samkeppni.
Það er eitthvað sem ég skil ekki og líklegast mun ég aldrei skilja þetta.
góða helgi alle sammen og gangi ykkur vel í "spar"akstrinum 
|
Lítilsháttar hækkun á olíuverði |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Viðskipti og fjármál | Föstudagur, 5. febrúar 2010 (breytt kl. 18:38) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Ég bíð spennt eftir því að sjá hvaða menn verða á listanum og hverjir ekki.
Ekkert hefur heyrst af listanum - hann er kannski bara að lognast út af??
Kannski eru einhverjir sem vilja vera með en fá ekki - og kannski eru einhverjir sem fá að vera með en vilja ekki.
Bíð bara spennt eftir fréttum ...........
Stjórnmál og samfélag | Laugardagur, 30. janúar 2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
.......................... með öllu??
En pullu með öllu nema hráum? Á mínu heimili fáum við okkur pullu - hvaðan kemur þetta orð eiginlega? Eða fröllurnar?? Það eru pantaðar fröllur með hamborgaranum - en ég veit að þetta orð kemur frá Hjördísi dóttur minni. Hún er eins og pabbi sinn - býr til orð - en það hefur hann alltaf gert. Orð sem við notum og þegar börnin voru lítil þá héldu þau að allir fengju sér morgara, vissu ekki að "venjulegt" fólk talar bara um morgunmat.
Ég hef aldrei "búið til" orð - apa bara upp eftir hinum á heimilinu og finnst það eðlilegt. Maður er náttúrulega bara skrítin
Dægurmál | Sunnudagur, 17. janúar 2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Þetta er algjört óréttlæti !! Ég er að tala um lágmarkslaun sem sumir þurfa að þiggja, en væru betur settir á atvinnuleysisbótum.
Ég er ekki á móti atvinnuleysisbótum - langt frá því, en það er eitthvað að þegar maður "hefur það betra" á bótum en að vinna.
Lyfjakostnaður er eitthvað sem ég legg ekki í að ræða, man bara fyrir nokkrum árum þegar TR (Tryggingastofnun Ríkisins) borgaði blóðþrýstingslyfin, þá kostuðu þau mörgum sinnum það sem þau kosta núna. S.s ef TR tekur þátt í kostnaði þá kosta lyfin meira en annars - þetta er staðreynd.
|
Sparnaður vegna lyfja um 1,6 milljarðar |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Mannréttindi | Þriðjudagur, 5. janúar 2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Vísindagreinar Moggans eru hreint ótrúlegar og auðvitað kvittar enginn blaðamaður undir þetta, ekki frekar en aðrar "fréttir".
En Mogginn er sem sagt að fræða okkur um þessa rannsókn og orðrétt segir: "að skortur á svefni sé áhættuþáttur í þinglyndi"
Hvað er áhættuþáttur í þinglyndi?? Auðvitað er þetta innsláttarklúður með þinglyndið en rétt ætti að vera "áhættuþáttur þunglyndis" (ekkert í neinu)
Svona skrif og svona lélegar þýðingar ættu ekki að sjást - nema ef grunnskólanemar væru að æfa sig í þýðingum - þá mundi maður fyrirgefa það.
En kæru Moggalesendur - þið vitið þá þetta: ef unga fólkið fer að sofa eftir miðnætti, þá fær það minni svefn en þeir sem sofna fyrir kl. 22 á kvöldin.
|
Svefnleysi veldur þunglyndi |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Laugardagur, 2. janúar 2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Dægurmál | Laugardagur, 2. janúar 2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Vinir og fjölskylda | Sunnudagur, 13. desember 2009 (breytt kl. 11:54) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Lífstíll | Mánudagur, 7. desember 2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Matur og drykkur | Sunnudagur, 6. desember 2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Menning og listir | Laugardagur, 5. desember 2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Tenglar
vefslóðir
- Kvennakór Hafnarfjarðar Kvennakór Hafnarfjarðar - góður kór
- Sá fimmtugi Sá fimmtugi á facebook
- Flakkara blogg Hjördís flakkari
- Gígjan Landsamband íslenskra kvennakóra
- Flottar veiðiflugur flugugallerí
- Olíuverð hægt að fylgjast með olíuverði
Börnin
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.2.): 11
- Sl. sólarhring: 29
- Sl. viku: 387
- Frá upphafi: 50009
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 117
- Gestir í dag: 6
- IP-tölur í dag: 6
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
holmdish
-
tigercopper
-
liljabolla
-
blavatn
-
totad
-
kruttina
-
gunnagusta
-
hlini
-
christinemarie
-
skordalsbrynja
-
gudrununa
-
hross
-
sillagunna
-
vilma
-
skelfingmodur
-
asdisemilia
-
bjarmalandsgengid
-
jeg
-
atvinnulaus
-
saedishaf
-
athena
-
sigrunsigur
-
berglindhaf
-
maggatrausta
-
asdisomar
-
elina
-
bjarkitryggva
-
bjarnihardar
-
topplistinn
-
gurrabk
-
gudrunjona
-
gattin
-
pensillinn
-
songfuglinn
-
audurproppe








