Streitustjórnun........

.......... er málið! Frúin er byrjuð með sjálfan sig í streitustjórnun - enda veitir ekki af. Vöðvabólgan er í sögulegu hámarki þessa daganna, bakverkir og þreyta. Af einhverjum ástæðum þá hef ég ekki farið út að labba síðustu vikur - kannski vegna kulda, leti...... alla vega þá gengu þetta ekki lengur. Það eru þrjú atriði sem ég þarf að taka fyrir: hreyfingin, sjálfsmatið og maturinn ( ná af mér 3 kg). Þegar þessi þrjú atriði eru í mínus þá verður streitan í plús. Þetta veldur bara þreytu, verkjum og vanlíðan.

Ég kann helling í streitustjórnun en samt tekur maður ekki í taumana fyrr en allt of seint. En nú er þetta verkefni sem sagt hafið og gengur bara vel.  

Eigið góða helgi kæru vinir og verið góð við hvert annað og ekki síst góð við ykkur sjálf.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aprílrós

Viltu taka mig í svona námskeið ?

Aprílrós, 28.3.2009 kl. 17:11

2 Smámynd: Aprílrós

Góða helgi esskan ;)

Aprílrós, 28.3.2009 kl. 17:11

3 identicon

Gangi þér vel í þessu verkefni, Sigrún mín

Kærleiksknús

Ásdís Emilía Björgvinsdóttir (IP-tala skráð) 28.3.2009 kl. 17:55

4 Smámynd: Ragnheiður

Gangi þér vel elskuleg, ég hef nú ekki heyrt leirtauið fljúga í veggina þannig að þú ert ekki á svo slæmum stað hehe

Ragnheiður , 28.3.2009 kl. 18:12

5 Smámynd: Auður Proppé

Gangi þér vel og knús á þig.

Auður Proppé, 28.3.2009 kl. 19:30

6 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Gangi þér vel og góða helgi

Hólmdís Hjartardóttir, 28.3.2009 kl. 20:48

7 Smámynd: Sigrún Óskars

takk stelpur og knús á ykkur

Aprílrós, þú kannt örugglega helling í "streitustjórnun" veist kannski ekki að þetta heitir svona fínu nafni

Ragnheiður, ég þyrfti þá kannski "reiðistjórnun" ef leirtauið færi af stað

Sigrún Óskars, 28.3.2009 kl. 20:51

8 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Gangi þér vel.  Göngutúrarnir með hundinn minn eru mín streitustjórnun. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 28.3.2009 kl. 23:43

9 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

Streita er það heillin...og ekki veitir mér af góðri streitustjórn þessa dagana.  En er byrjuð að skella mér í labbitúra af og til.....  gangi þér vel!

Sigríður Sigurðardóttir, 31.3.2009 kl. 14:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband