Ég er búin að kjósa mig í 1. sætið!

... og þar er ekki nýliðun á ferð og engin loforð um þetta og hitt - ætla bara að vera ég áfram.  Allir fjölmiðlar eru morandi af þessum auglýsingum - kjóstu mig í þetta og hitt sætið - vantar nýliðun - geri þetta og hitt - en hvað er að marka þessar yfirlýsingar. Ekkert! Þegar fólkið er komið á þing þá kemur annað hljóð í skrokkinn. Hvað geta þessir væntanlegu þingmenn verið að lofa - hafa aldrei verið á þingi og vita ekkert hvernig þetta virkar. Hafa heldur ekkert fjármagn til að gera það sem þau vilja. En allavega hafa margir fjármagn til að auglýsa sig - með flottum myndum og rosa fyrirsögnum. Gangi þeim bara vel !!

Ég er allavega búin að fá leið á þessu og set bara sjálfan mig í 1. sætið - svo kaus ég þann fimmtuga í 2. sætið - hann er fínn þar, heldur engin nýliðun þar - þarf heldur ekki.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Þessar prófkjörs auglýsingar með gleiðbrosandi frambjóðendum eru óþolandi maður hefur ekki getað opnað neinn fjölmiðil í friði undandfarna daga.  Án þess að þetta skelli á manni.      Kjóstu mig plís plís ég hættur að ræna og stela og fann siðsemi á útsölu í kolaportinu um daginn.   Æ nú er ég hætt.

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 14.3.2009 kl. 12:08

2 Smámynd: Aprílrós

Ég kís lika mig í 1 sæti ;) góða helgi Sigrún mín ;)

Aprílrós, 14.3.2009 kl. 14:51

3 Smámynd: Tiger

  Ég kýs bara ró og næði .. og kannski frið á Jörð!

Omg .. ég er fegurðardrottning .. og kýs frið á jörð!

Knús á þig Sigrún mín .. þú sómir þér yndislega í fyrsta sætinu!

Tiger, 14.3.2009 kl. 22:37

4 identicon

Takk fyrir sætar kveðjur!!!! Gaman væri að kíkja á skurðstofurnar!!! Ég er að fíla þetta allt rosalega vel...

Verst að ég missi af árshátíð Kvennakórsins.... En maður getur ekki verið í öllu....Heyrumst og sjáumst kanski...Ragga

Ragnheiður Rafnsdóttir (IP-tala skráð) 15.3.2009 kl. 11:11

5 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

Já, það er mikið til í því sem þú segir, Sigrún. Ég fór nú samt og kaus í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins, mér fannst það vera eini möguleikinn sem ég hef til að hafa einhver áhrif, þ.e. að hafa áhrif á uppröðun á listana. Ég var glöð að Illugi Gunnarsson náði fyrsta sætinu en ekki alveg eins ánægð með röðunina á eftir honum, hefði viljað sjá annað fólk í mörgum sætum..... en svona er lífið.

Heldur engin nýliðun í gangi hérna megin, enda gott að hafa fasta og örugga ramma í kringum sig þegar allt annað í þjóðfélaginu er upside down.....

Lilja G. Bolladóttir, 16.3.2009 kl. 21:23

6 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Hólmdís Hjartardóttir, 16.3.2009 kl. 21:40

7 Smámynd: Guðrún Una Jónsdóttir

Til hamingju með fyrsta og annað sætið :-)

Guðrún Una Jónsdóttir, 16.3.2009 kl. 22:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband