Í kringum hnöttinn fyrir 92 þúsund

London - New York - Auckland(Nýja Sjáland) - Bali - Singapore - London  fyrir 760 pund (92.000 ísl.). Þetta finnst mér ódýrt en við þetta bætist flugvallaskattur.  Þú ræður hvað þú stoppar lengi á hverjum stað og getur svo bara breytt dagsetningum ef þú vilt og svo getur þú ráðið hvorn hringinn þú ferð. T.d. að enda í New York og verslað (þ.e.a.s. ef maður á afgang). Svo eru ýmsar aðrar leiðir í boði.

Það er minnsta mál að fljúga langar leiðir, ferð bara í teyjusokka, drekkur vel af vatni, horfir á sjónvarpið (hver farþegi er með sinn skjá og getur ráðið á hvað hann horfir) og svo sefur maður bara restina. Hljóma ég eins og auglýsing? Nánari uppl. veittar.....................Nei, ég veit bara að það þarf ekki að vera dýrt að fljúga á milli staða, þ.e.a.s. þegar maður er kominn frá Íslandinu góða.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Hi, nei það þarf ekki að vera dýrt. Eftir 3 vikur fer ég London.HongKong, HoChiMin og til baka sömu leið fyrir 80 þús. Við fljúgum innanlands í Víetnam hvert far innan við 2000kr. Ertu að fara í stórreisu??? Við fórum nú aldeilis stórreisu um árið.

Hólmdís Hjartardóttir, 9.1.2008 kl. 13:23

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Ég ætlaði að skrifa hæ

Hólmdís Hjartardóttir, 9.1.2008 kl. 13:24

3 Smámynd: Sigrún Óskars

Ég segi nú bara góða ferð og þú bloggar nú frá Hong Kong og Vietnam er það ekki?

Sigrún Óskars, 9.1.2008 kl. 13:41

4 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Reyni það. Stoppa ekkert í HongKong.verð 23 daga út um allt Vietnam.

Hólmdís Hjartardóttir, 9.1.2008 kl. 13:49

5 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

  • Rétt að taka með sér Lasix eða Furix út af
vökvasöfnuninni. NB! Ekki gleyma bólusetningunum

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 12.1.2008 kl. 01:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband