Færsluflokkur: Spaugilegt
-Maður nokkur var staddur í Hagkaupum að kaupa sér kjúkling þegar gullfalleg
kona, sem stóð við kælinn, veifaði í hann og brosti til hans. Hann varð
hálfvandræðalegur, en gekk til hennar og spurði hvort þau þekktust. "Já, ég
er ekki frá því að þú sért pabbi eins stráksins míns" svaraði hún.
Varð nú okkar maður heldur betur vandræðalegur, hrökk allnokkuð við og
stamaði klúðurslega út úr sér "ha... ert þú stripparinn á Bóhem sem ég
dúndraði í steggjapartíinu mínu fyrir framan alla vini mína og spreyjaði
með þeyttum rjóma meðan þú tróðst agúrku upp í rassgatið á mér... ó mæ god,
ég þekkti þig ekki!"
Konan svaraði svipbrigðalaust:
"Nei, ég er umsjónarkennari sonar þíns!"
Spaugilegt | Föstudagur, 19. ágúst 2011 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Halló kærust vinur minn.
ég fæ mikið af allskonar bréfum á netfangið mitt (er með .com, ekki .is) - en þetta toppar þau öll - búin að hlægja mikið af þessu.Nú eru "hakkararnir" búnir að uppgötva google translate og þetta er útkoman. Þeir pikka líka upp einhver íslensk nöfn og nota í netföngin sín, svo maður heldur að það sé íslendingur að senda manni t.d. sigrid hjá yahoo ........... Þessi kona er að leita að manni sem er m.a. logn, kurteis og auðmjúkur.... heldur að hann sé til á Íslandi. Ég veit að vísu ekki hvaða síðu hún vafraði inná nema þá þetta blogg, en myndin af mér er ekkert kallaleg - eða hvað. Hún er kannski að leita af manninum mínum hann er allt þetta sem hún nefnir - gæti meira að segja verið logn
|
Spaugilegt | Sunnudagur, 3. október 2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
.................. trúið mér, það verður svo kalt allan næsta vetur að það getur enginn farið út nema með húfu. Þetta varir næstum alla vetrarmánuðina.
Þess vegna er upplagt að gefa húfur í jólagjöf. Sé fyrir mér að það verði aðal jólagjöfin í ár. Það vill svo skemmtilega til að ég hef til sölu húfur, sem þola þennan kulda sem verður í vetur - enda gerðar úr íslenskum lopa af bestu gerð.
Nánari upplýsingar eru....................
nei þetta er bara grín - ég sé að vísu vel þegar ég er með linsurnar mínar. Þetta er bara í stíl við jarðskjálfta- grínið sem blöðin kokgleyptu við.
Húfurnar prjónaði ég í sumarfríinu - ekki að það hafi verið kalt - var bara að hugsa um næsta vetur - ef það skyldi verða kalt
Spaugilegt | Miðvikudagur, 29. júlí 2009 (breytt kl. 11:55) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
..... sem vert er að prófa um helgina. Það er sem sagt búið að betrum bæta bjórinn sem heitir Kaldi. Sett hefur verið pínkulítið (já bara pínkulítið) af Víagra í hann og heitir hann núna ......................................Stinningskaldi
Spaugilegt | Fimmtudagur, 30. apríl 2009 (breytt kl. 21:55) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Feðgar voru úti í búð þegar sonurinn kom auga á hillu fulla af smokkapökkum. Sonurinn spyr hvers vegna það væru til mismunandi pakkningar.Pabbinn svaraði: Sko, sjáðu þennan hér, 3 í pakka? Það er fyrir menntaskólann. Tveir á föstudagskvöld og einn á laugardagskvöld.
Til hvers eru þá 6 í pakka? spyr sonurinn.
Það er notað þegar þú ert í háskóla. Tveir á föstudagskvöld, tveir á laugardagskvöld og tveir á sunnudagsmorgun svaraði pabbinn.
En til hvers eru þá 12 í pakka? spyr sonurinn.
Það er fyrir gifta menn svaraði pabbinn. Einn í janúar, einn í febrúar, einn í mars
..
Spaugilegt | Miðvikudagur, 27. febrúar 2008 (breytt kl. 21:34) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Ég get ekki sofnað, sit með sherry og les brandara sem ég er með í möppu á desktoppinu. Hér er einn góður:
Geir litli er sá klárasti í bekknum, og er alltaf fyrstur að klára prófin og spurningarblöðin.Svo að hann hafi nú eitthvað að gera, eftir að hann var fyrstur búinn að svara spurningarblaði kennarans, ákvað kennarinn að spyrja hann aukaspurningar.Geir minn, þú ert nú svo klár, að ég ætla að spyrja þig einnar aukaspurninar. Það eru 5 fuglar á grein, þú ert með byssu og skýtur einn fuglinn, hvað eru þá margir fuglar eftir ?
Enginn, svarar Geir.
Hvað meinar þú enginn ?, spyr kennslukonan.
Já, einn drepst, dettur til jarðar og hinir fljúga í burtu segir Geir
Kennslukonan kinkar kolli og segir svarið átti nú að vera 4, en mér líkar hvernig þú hugsar
Örstuttu seinna réttir Geir litli upp hendi.
Já Geir
Má ég spyrja þig einnar spurningar?
Endilega segir kennslukonan.
Ókei, 3 konur standa við ísbíl, og allar eru búnar að kaupa sér ís, ein af þeim sleikir ísinn, ein af þeim bítur í ísinn og ein af þeim sýgur ísinn. Hver þeirra er gift? spyr Geir
Kennslukonan roðnar og segir, Eee .ég veit ekki alveg, ætli það sé ekki sú sem sýgur ísinn? .eða eitthvað
Neeiiii segir Geir litli, það er sú sem er með giftingarhringinn, en mér líkar hvernig þú hugsar
Spaugilegt | Fimmtudagur, 21. febrúar 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Saga úr bekkjarafmæli:
Ósk Ýr gekk rösklega með Branda Ara í afmælið til Egils Daða því hún var
að verða of sein að sækja Leif Arnar og Loft Stein í leikskólann.
Borgar Vörður, pabbi Egils Daða, tók á móti þeim.
Þarna voru Lind Ýr, Líf Vera, Sól Hlíf og Hreinn Bolli.
Erlendur Hreimur kom blaðskellandi innan úr stofunni og vinkonurnar Vísa
Skuld og Dís Ester fast á hæla honum.
Mýra Þoka lét lítið fyrir sér fara úti í horni.
Innan úr herbergi Egils Daða bárust ógurlegir skruðningar -
"#%=&#$&/(=!z#$!/!=!
Línus Gauti, Barði Vagn og Mist Eik voru greinilega mætt. En hvar var
Ríta Lín?
Fyrir utan var Sædís Líf í rauðum fólksvagni.
Hægt og sígandi nálgaðist Jökla Þoka eftir stígnum.
Hún var orðin alltof sein í afmælið.
Spaugilegt | Sunnudagur, 3. febrúar 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Tenglar
vefslóðir
- Kvennakór Hafnarfjarðar Kvennakór Hafnarfjarðar - góður kór
- Sá fimmtugi Sá fimmtugi á facebook
- Gígjan Landsamband íslenskra kvennakóra
- Flottar veiðiflugur flugugallerí
- Olíuverð hægt að fylgjast með olíuverði
Börnin
Bloggvinir
- holmdish
- tigercopper
- liljabolla
- blavatn
- totad
- kruttina
- gunnagusta
- hlini
- christinemarie
- skordalsbrynja
- gudrununa
- hross
- vilma
- skelfingmodur
- jeg
- atvinnulaus
- saedishaf
- athena
- sigrunsigur
- maggatrausta
- elina
- bjarkitryggva
- bjarnihardar
- ingahel-matur
- curvychic
- gattin
- pensillinn
- songfuglinn
- audurproppe
- topplistinn
- gudrunjona
- hamingjustundir
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar