Færsluflokkur: Vísindi og fræði
..... og förum á
og skrifum undir.
hægt er að lesa um verkefnið hér http://is.isci.is/Lesa/92
Auður Guðjónsdóttir á það skilið af okkur konum að við leggjum henni lið á síðustu metrunum - það gæti orðið til þess að tillaga til Norðurlandaráðs verði tekin fyrir og samþykkt.
Í stórum dráttum er efni tillögunnar að Norðurlandaráð setji á stofn starfshóp lækna og vísindamanna sem hafi það hlutverk að skoða norrænar og aðrar rannsóknir og meðferðir á mænuskaða og gera tillögur um úrbætur.
Konur - sýnum samtakamáttinn og skrifum undir.
Eigið góða viku.
Vísindi og fræði | Miðvikudagur, 24. ágúst 2011 (breytt 26.8.2011 kl. 10:02) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Ég vann tvo tíma í kundalini jóga hjá Ljósheimum. Er að hugsa um að skella mér og prófa..... þetta ku gera manni gott
Á heimasíðu Ljósheima www.ljosheimar.is er eftirfarandi fróðleikur um Kundalini jóga:
"Kundalini jóga er stundum kallað jóga vitundar. Það er kraftmikið og skjótvirkt og kemur jafnvægi á innkirtlastarfsemi þína, styrkir taugakerfið og gerir þér kleift að virkja orku huga og tilfinninga. Kundalini jóga styrkir einnig hjarta og æðakerfið og hefur góð áhrif á meltinguna."
"Kundalini jóga vísindin tvinna saman andardrátt, handstöður, augnfókus, möntrur, líkamslása og líkamsstöður á mjög ákveðinn og meðvitaðan hátt en það kemur á jafnvægi milli líkama, huga og sálar."
"Kundalini jóga er fyrir venjulegt fólk sem þarf að takast á við verkefni dagsins, vinnu, fjölskyldu og áreiti nútímans. Allir geta iðkað Kundalini og krefst þess ekki að fólk breyti neinu í sínu daglega lífi."
"Kundalini orkan býr í hverju okkar en liggur í dvala við neðsta hryggjarliðinn hjá flestum. Þessa orku er unnið með í kundalini jógatíma og hún látin rísa upp hryggjarsúluna. Þegar það gerist gefur það okkur dýpri tengingu við okkur sjálf auk þess sem það eykur áhrif alls sem við gerum í tímanum."
Eigið góða helgar-rest
Vísindi og fræði | Laugardagur, 16. apríl 2011 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
en samkvæmt þessari nýju rannsókn verð ég sko langlíf;
- tek þétt í höndina á fólki
- stend hratt uppúr stól
- get haldið jafnvægi á einni löpp, þegar ég er að teygja á lærvöðvum.
Það er eins gott að þessi rannsókn sé vel unnin og "alvöru"
en by the way hugmyndaflugið hjá þessum vísindamönnum í London, ég segi bara ekki annað.
sendi ykkur öllum knús og kveðjur.
Sterkt handaband tengt langlífi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | Laugardagur, 11. september 2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
............ eða hvað?? Nú ætla ég að kaupa B-vítamín fyrst það gæti "mögulega" komið í veg fyrir að maður versni . Svo get ég farið að drekka meiri bjór - er hann ekki svo B-vítamínríkur?? og saðsamur, þannig að ég grennist líka
Ég er í góðum málum trallalla la
Nei Alzheimer er ekkert grín - þetta er skelfilegur sjúkdómur og vona ég að hann banki ekki uppá í mínum húsum.
B-vítamín draga úr heilahrörnun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | Fimmtudagur, 9. september 2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vísindagreinar Moggans eru hreint ótrúlegar og auðvitað kvittar enginn blaðamaður undir þetta, ekki frekar en aðrar "fréttir".
En Mogginn er sem sagt að fræða okkur um þessa rannsókn og orðrétt segir: "að skortur á svefni sé áhættuþáttur í þinglyndi"
Hvað er áhættuþáttur í þinglyndi?? Auðvitað er þetta innsláttarklúður með þinglyndið en rétt ætti að vera "áhættuþáttur þunglyndis" (ekkert í neinu)
Svona skrif og svona lélegar þýðingar ættu ekki að sjást - nema ef grunnskólanemar væru að æfa sig í þýðingum - þá mundi maður fyrirgefa það.
En kæru Moggalesendur - þið vitið þá þetta: ef unga fólkið fer að sofa eftir miðnætti, þá fær það minni svefn en þeir sem sofna fyrir kl. 22 á kvöldin.
Svefnleysi veldur þunglyndi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | Laugardagur, 2. janúar 2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
.................. trúið mér, það verður svo kalt allan næsta vetur að það getur enginn farið út nema með húfu. Þetta varir næstum alla vetrarmánuðina.
Þess vegna er upplagt að gefa húfur í jólagjöf. Sé fyrir mér að það verði aðal jólagjöfin í ár. Það vill svo skemmtilega til að ég hef til sölu húfur, sem þola þennan kulda sem verður í vetur - enda gerðar úr íslenskum lopa af bestu gerð.
Nánari upplýsingar eru....................
nei þetta er bara grín - ég sé að vísu vel þegar ég er með linsurnar mínar. Þetta er bara í stíl við jarðskjálfta- grínið sem blöðin kokgleyptu við.
Húfurnar prjónaði ég í sumarfríinu - ekki að það hafi verið kalt - var bara að hugsa um næsta vetur - ef það skyldi verða kalt
Vísindi og fræði | Miðvikudagur, 29. júlí 2009 (breytt kl. 11:55) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Ég bara spyr!
Á www.vedur.is er sýnt hvernig veðrið á höfuðborgarsvæðinu er núna og það á að vera léttskýjað sól og alles. Ég er búin að fara út og gá - sé enga sól - bara ský. Setti upp sólgleraugu - samt engin sól. Bara sól í hjarta og á vedur.is.
Ætla samt útí garð í garðverkin - enda er veður bara hugarfar og tákn á skjánum hjá veðurfræðingum veðurstofunnar. Eru ekki gluggar á veðurstofunni?
Eigið góðan dag allir saman - hvernig sem veðrið er
Vísindi og fræði | Sunnudagur, 21. júní 2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Tenglar
vefslóðir
- Kvennakór Hafnarfjarðar Kvennakór Hafnarfjarðar - góður kór
- Sá fimmtugi Sá fimmtugi á facebook
- Gígjan Landsamband íslenskra kvennakóra
- Flottar veiðiflugur flugugallerí
- Olíuverð hægt að fylgjast með olíuverði
Börnin
Bloggvinir
- holmdish
- tigercopper
- liljabolla
- blavatn
- totad
- kruttina
- gunnagusta
- hlini
- christinemarie
- skordalsbrynja
- gudrununa
- hross
- vilma
- skelfingmodur
- jeg
- atvinnulaus
- saedishaf
- athena
- sigrunsigur
- maggatrausta
- elina
- bjarkitryggva
- bjarnihardar
- ingahel-matur
- curvychic
- gattin
- pensillinn
- songfuglinn
- audurproppe
- topplistinn
- gudrunjona
- hamingjustundir
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar