Ég sat í náttfötunum, með kaffibolla.....

...... og hugsaði hvort það væri hægt að deyja úr rolugangi og leti. Nennti ekki út , nennti ekki að laga til - sólin skein á stigann og undir hann Crying þvílíkt ryk samankomið á einum stað. 

Þá allt í einu koma fjórir myndarlegir InLove og draga mig út. Ég rétt náði að klæða mig í lopann og snjóbuxurnar og reima á mig Scarpa. Setti svo þessa fjóra myndarlegu í eyrað (og heyrnartækið í hitt) og lagði af stað. Þetta voru Il Divo sem drógu mig út í sólina og sungu fyrir mig allann tímann Whistling. Þeir fara oft með mér út að labba - fínir göngufélagar. Það er annar myndarlegur sem dregur mig stundum út að ganga, en hann er blindur - ég þarf ekki að leiða hann, því hann er farin að rata svo vel um Álftanesið Cool

Þegar ég kom inn þá skein sólin ekki lengur á stigann og ég sá ekkert ryk. Tounge


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aprílrós

Góð aðferð til að sjá ekki rykir er að koma sér úr sjónmáli við rykið, fara ut i sólina og koma inn þegar sólin er hætt að skýna. Nkl eins og þú gerðir Sigrún ;) Þetta ætla ég a gera ;)

Aprílrós, 18.1.2009 kl. 17:53

2 Smámynd: Ragnheiður

Haha ..ég get svosem lánað þér göngufélaga í labbitúrana..

Ragnheiður , 18.1.2009 kl. 18:15

3 Smámynd: Guðrún Una Jónsdóttir

Skil vel að göngutúrinn hafi verið skemmtilegur. Tónlistin getur svo sannarlega peppað mann upp. Og hvað gerir maður ekki til að sleppa við að þurrka af eitthvert bölvað ryk.

Guðrún Una Jónsdóttir, 18.1.2009 kl. 22:01

4 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

  Il Divo eru frábærir

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 19.1.2009 kl. 00:59

5 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

  "Draga vel fyrir glugga" þá sól skín á rykuga staði, og BINGÓ ekkert ryk.  En ég skal trúa því að göngutúrinn hafi verið góður.

Sigríður Sigurðardóttir, 20.1.2009 kl. 13:54

6 Smámynd: Sigrún Óskars

Góð hugmynd að draga fyrir glugga  

Sigrún Óskars, 20.1.2009 kl. 16:02

7 identicon

já Il Divo eru yndi.... Mikið ertu dugleg að drífa þig út að ganga.... En eins og þú sagðir varstu í góðum félagsskap..

Söngkveðjur frá Höfn...

Ragnheiður Rafnsdóttir (IP-tala skráð) 22.1.2009 kl. 07:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband