Það er til létt leið til að hætta að reykja!

Hún er allavega létt ennþá - eftir 16 daga. Mig langar ekki í smók frekar en ég veit ekki hvað - búin að græða hellings pening og 2 kíló. Hvað ætli ég kosti per kíló? Þarf að passa mig að þyngjast ekki og þyngjast - hlýt að geta það.

Létta leiðin til að hætta að reykja er að lesa bókina, sem ber þetta nafn. Hún er snilld.

Það er eitt sem ég er ekki alveg nógu ánægð með og það er ég nenni ekki í líkamsrækt! Keypti kort í Hress og hélt að þar væri sama stemningin og var á árum áður. En það er nú aldeilis ekki.  Það er ekki gaman í vinnunni hjá starfsfólkinu og gæinn sem kenndi mér á tækin hafði ekki mikinn áhuga - þið munið hann kallaði mig Sigríði og vildi 15oo kr. fyrir kennsluna. Kannski er ekkert gaman þarna af því ég er alein, ekki með neinum - allavega þarf ég að taka mig á og drífa mig bara. Ég er með leikfimistöskuna í bílnum ef ske kynni að ég færi.

Á meðan er þessi Sigríður að gera æfingarnar sem gæinn setti niður á blað og merkti henni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Ágústa Einarsdóttir

Flott hjá þér mín kæra...þú stendur þig bara vel. já það er ekki skemmtilegt að æfa einn eða það finnst mér ekki. Og er ég oft að spá í að fara í ræktina en hef ekki komið mér í það ennþá. En gangi þér vel með þetta allt saman. knús knús. kv Gunna. 

Guðrún Ágústa Einarsdóttir, 16.9.2008 kl. 20:06

2 Smámynd: Aprílrós

já það þarf hörku til að drífa sig af stað í ræktina. Ég fór aldrei í söngtestið í kórnum þínum. ;) kem bara og hlusta í staðinn á konsertum.

Aprílrós, 16.9.2008 kl. 20:10

3 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

ógisslega ertu dugleg Sigrún

Hólmdís Hjartardóttir, 16.9.2008 kl. 20:26

4 Smámynd: Brynja skordal

Mikið ertu dugleg þarf að skoða þessa tilteknu bók hummm já þarf þess sko hafðu það ljúft Elskuleg

Brynja skordal, 16.9.2008 kl. 23:18

5 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

Mér finnst þú nú bara alveg ferlega dugleg!! Skítt með ræktina, maður getur nú ekki tekið á öllu í einu.

Annars er það mín skoðun, að maður eigi ekki að þræla sér í gegnum leiðinlega líkamsrækt, frekar að gera eitthvað sem manni finnst skemmtilegt; ganga, hjóla eða hvað sem er.

Lilja G. Bolladóttir, 20.9.2008 kl. 17:19

6 identicon

Blessuð Sigrún!

Langaði bara að kíkja inn hjá þér og skilja eftir kveðju. Ég kíkti líka á tengilinn sem þú ert með á Kvennakór Hafnarfjarðar og var að hugsa, hvað þetta hefði verið skemmtilegur tími sem ég átti með kórnum. Ertu til í að skila kveðju frá mér til þeirra sem voru í kórnum þegar ég var með ykkur, bið alveg hreint kærlega að heilsa þeim

Kær kveðja

Ásdís Emilía Björgvinsdóttir (IP-tala skráð) 22.9.2008 kl. 16:02

7 Smámynd: Vilma Kristín

Vonandi léstu Sigríði borga blessuðum manninum kennsluna :)

Vilma Kristín , 23.9.2008 kl. 00:05

8 Smámynd: Tína

Hrikalega er ég ánægð með þig. Ég las einmitt þessa bók og hætti að reykja í framhaldinu. En ég byrjaði svo aftur þegar ég fékk greiningu. Ætli þetta hafi samt ekki bara verið afsökun hjá mér????

Knús á þig vinkona og haltu áfram á sömu braut.

Tína, 23.9.2008 kl. 08:37

9 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

  Gengur bara vel hjá "mér" og 1500-króna-gæjanum......!  Hann var samt svolítið rasandi hve mikið "þú" hafðir breyst á nokkrum dögum...ég sagði honum að "við" værum nýkomnar úr "botox"hehe.

  Baráttukveðjur í reykingarslagnum....ég spái þér sigri, vinkona.

Sigríður Sigurðardóttir, 23.9.2008 kl. 17:49

10 Smámynd: Sigrún Sigurðardóttir

hmmmm þarf endilega að redda mér þessari bók. er orðin hundleið á að reykja og er að safna í mig kjark til að hætta hehe(léleg afsökun á frestinum)  knús til þín frá Ísó

Sigrún Sigurðardóttir, 25.9.2008 kl. 11:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband