Strandir, Vestfirðir, Landmannalaugar, garðurinn og góða veðrið !!

Nú fer sumarfríið að klárast - byrja að vinna á fimmtudaginn - Skrítið hvað 4 vikur líða hratt! 

Fríið hefur verið æðislegt - fórum vestur á strandir og á vestfirði, öll fimm saman. Veðrið var gott allan tímann, sem skiptir miklu máli. Gistingin "heppnaðist" vel en ég var búin að panta svefnpokagistingu fyrir okkur. Gistiþjónusta Sunnu á Drangsnesi toppar það samt alveg - mjög flott gisting fyrir sanngjarnt verð.

Ég á eftir að fara aftur á vestfirði, það er svo margt að sjá og skoða - engan vegin hægt að gera það í einni ferð.

Við fórum einnig í dagsferð uppí Landmannalaugar. Hjördís og Craig ætluðu þangað á "puttanum"  en við skutluðum þeim bara - alltaf gaman að koma þangað, ganga "hringinn" inní Grænagil - ólýsanleg fegurð.

Sigrun, Ivar, Hjordis and Craig

Ég er heppin að fá svona gott veður þessa viku - garðvinnan er svo miklu skemmtilegri í sól. Skrítið hvað arfinn vex hratt, þegar maður bregður sér af bæ í hálfan mánuð. En mér finnst nú skemmtilegt að liggja á hnjánum í garðinum ( mér finnst samt ósanngjarnt að ég fái ekki kúlurass) Wink

hafið það gott alle sammen Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Óskars

á myndinni eru Hjördís, Craig, ég og Ívar í Landmannalaugum.

Sigrún Óskars, 21.7.2009 kl. 23:14

2 Smámynd: Aprílrós

Aprílrós, 22.7.2009 kl. 01:10

3 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

Grand sumarfrí, vinkona.  Varð að endurhugsa allt fríið með bónda axlarbrotinn....verðum mest í eins dags túrum familían og svo í borginni við sundin bláu þess á milli.  Axlarbrotnir menn lélegir í útilegum og langferðum....og þessi líka bongóblíða alla daga!  Á Landmannalaugar alveg eftir....bregð mér máske bara þangað í gamalmannaferð þegar ég kemst á eftirlaunaaldurinn.  Flott mynd af ykkur.

Sigríður Sigurðardóttir, 25.7.2009 kl. 12:26

4 Smámynd: Sigrún Óskars

leiðinlegt að heyra með axlarbrotið Sigríður, en Landmannalaugar eru ekki langt í burtu og hægt að fara þangað á venjulegum bíl (nyðri leiðina) - góður dagstúr ( kannski ekki með þann axlarbrotna)

Sigrún Óskars, 25.7.2009 kl. 12:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband