Færsluflokkur: Trúmál

nýtt skordýr í garðinum mínum !!

Þetta nýja skordýr er eins og lítill járnsmiður nema koparlitað, alveg gjáandi, næstum eins og gull. Mjög fallegt og hleypur á stéttinni eins fætur toga. Ég hef aldrei séð þetta áður. Það eru svona alveg eins pöddur í garðinum nema bara svartar. Þessar eru miklu fallegri.

Veit einhver hvað þetta getur verið??

Í dag komu til mín tveir ungir og huggulegir menn með Varðturninn. Af og til kemur hingað, lengst út á Álftanes, fólk frá Vottum Jehóva með þetta blað og gefur okkur. Það er ekki eins og við búum í alfaraleið. Þeir bara gefa þetta og vonast auðvitað til að maður frelsist og gangi í þeirra söfnuð - eða hvað. Þetta er líklegast bara góðmennska - þeir ganga jú á Guðsvegum. Maður spjallar aðeins við þá, svo bara fara þeir.

Farin í rúmið með "karlar sem hata konur"  - vinnan á morgun + bakvakt. Good night og dreymi ykkur fallega Sleeping Halo

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband